Indhold
„Ef þú undirbýrð þig eftir því kerfi sem hér verður kynnt máttu vera viss um að átökin og erfiðleikarnir sem þú óttast að fylgi því að sleppa nikótíni verða ekki nándar nærri eins mikil og þú heldur.“
Þetta segir Ásgeir R. Helgason, doktor í læknavísindum og dósent í sálfræði við Háskólann í Reykjavík, í athyglisverðri aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í dag. Ásgeir er líklega einn þekktasti fræðimaður landsins þegar kemur að nikótínfíkn og leiðum til að vinna bug á henni.
Í grein sinni bendir hann á að nikótín sé öflugt eitur- og fíkniefni sem gerir mann líkamlega háðan neyslunni.
Mjög sterkt taugaeitur
„Nýlegar rannsóknir sýna að nikótín örvar vöxt krabbameins. Nikótín dregur úr blóðflæði til háræða og stuðlar þannig að tannlosi og hrukkumyndun í húð og hækkar blóðþrýsting. Nikótín er eitt sterkasta taugaeitur sem þekkist, getur framkallað kvíða og hefur neikvæð áhrif á hjarta- og æðasjúkdóma,“ segir hann.
Ásgeir bendir á að flestir sem nota nikótín daglega vilji hætta því en margir gefist upp vegna fráhvarfseinkenna.
„Áður en þú ferð að nota leiðbeiningar til að hætta að nota nikótín ættirðu að láta reyna á það fyrst, ef þú hefur ekki þegar gert það, hvort þú þurfir yfirleitt á nokkrum leiðbeiningum að halda. Margir ákveða einfaldlega að hætta og standa við það án teljandi erfiðleika,“ segir Ásgeir og bætir við að ef þú ert í hópi þeirra sem gengur illa að hætta sé gott að vita að hægt er að kenna fólki aðferðir til að búa sig undir það.
Myndaðu nikótínlaus svæði
Ásgeir nefnir fyrst að fólk ætti að byrja að mynda nikótónlaus svæði. Hvetur hann fólk til að hætta að nota nikótín á þeim stöðum sem það dvelur mest á.
„Þegar þú hefur einu sinni ákveðið að tiltekinn staður skuli vera nikótínlaus máttu ekki hvika frá því hvað sem á dynur. Ef þú ert á nikótínlausu svæði og löngunin alveg að sliga þig verðurðu annaðhvort að standast löngunina eða bregða þér út fyrir svæðið til að svala fíkninni.“
Ásgeir segir að ef þú gerir flest svæði nikótónlaus sem fyrst megirðu vera viss um að baráttan við löngunina verður mun auðveldari eftir að þú hættir alveg.
„Reynslan hefur sýnt að tveggja til þriggja vikna undirbúningstími er æskilegur. Lengri undirbúningstími, þar sem nikótínlaus svæði eru mynduð með nokkurra vikna eða jafnvel mánaða fyrirvara, gefst í mörgum tilvikum vel. Varasamt getur þó verið að hafa undirbúningstímann of langan því botninn vill stundum detta úr ef menn fresta því um of að hætta alveg,“ segir hann.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Hættir að nenna að svala fíkninni
Ásgeir segir að þó markmiðið með myndun nikótónlausra svæða sé fyrst og fremst að rjúfa tengslin á milli reykinga og umhverfis þá hafi þessi aðferð annað og ekki síður mikilvægt gildi fyrir þá sem eru mjög sólgnir í nikótón.
„Þeir sem mynda nikótínlaus svæði á þann hátt sem að framan er lýst draga að jafnaði talsvert úr nikótínneyslu á undirbúningstímanum. Þetta gerist nokkuð sjálfkrafa, því fæstir nenna að leggja mikið á sig til að svala fíkninni nema þegar þörfin verður mjög aðkallandi,“ segir Ásgeir og nefnir að miklir nikótínistar sem draga verulega úr neyslu í nokkrar vikur áður en þeir hætta alveg séu í mun minni hættu á að fá ýmis líkamleg fráhvarfseinkenni.
Ásgeir segir að áður en dagurinn sem þú velur til að hætta alveg að nota nikótín rennur upp geti verið ráð að vera búinn að birgja sig vel upp af hjálpartækjum.
„Fáðu þér eitthvað sem þú getur sett upp í þig. Hægt er að kaupa mentólmunnúða í flestum apótekum. Sprautaðu upp í þig þegar þú finnur hjá þér löngun í nikótín. Sykurlaust bragðsterkt tyggjó sem hægt er að geyma undir vörinni og hentar vel sem staðgengill fyrir nikótínpúða og snus.“
Ásgeir segir að fleira geti virkað vel:
„Lakkrísrót sem fá má í sumum heilsubúðum. Lakkrísrótin bragðast eins og daufur apótekaralakkrís. Skolið rykið af rótinni áður en þið farið að naga hana. Bæði lakkrísrót og mentólmunnúði hafa þann kost að hægt er að nota þau að vild án þess að eiga á hættu að fitna. Annað sem hægt er að styðjast við eru mentólnefstifti og sykurlausar bragðsterkar töflur. Ef þú drekkur mikið af vatni og hreinum ávaxta- og grænmetissafa flýtir það fyrir úthreinsun nikótíns. Heitt vatn með cayennepipar, engifer og sítrónu hefur líka góð áhrif.“
Ýmislegt hægt að gera
Í grein sinni tekur Ásgeir svo niðurstöðurnar saman og minnir á að fólk ætti að mynda nikótínlaus svæði sem fyrst og velja sér H-dag, dag til að hætta.
„Ef þér finnst þú ekki vera tilbúinn þegar dagurinn rennur upp skaltu bara hætta við fyrsta tækifæri þegar þú finnur að þú ert tilbúinn. Náðu í „hjálpartæki“ til að hafa í staðinn fyrir nikótínið fyrstu vikurnar eftir að þú hættir að nota það. Hjá Heilsuveru, s. 1700, vinna sérfræðingar sem geta aðstoðað þig við að hætta að nota nikótín.“