Lýsing í lögregluskýrslu á innihaldi upptöku úr myndeftirlitsvél úr leigubíl sem var vettvangur meints brots sjónvarpsstjörnunnar Bassa Maraj, Sigurjóns Baltasar Vilhjálmssonar, leiðir ekki óyggjandi í ljós að Bassi sé sekur um allt það sem lýst er í ákæru lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu á hendur honum.
Þannig er Bassi sagður hafa vafið posasnúru um háls leigubílstjórans en engin snúra kemur fram í lýsingu á myndbandinu. Í myndbandslýsingunni kemur fram að bílstjórinn og Bassi hafi hnoðast inni í bílnum, Bassi skipar bílstjóranum ítrekað að skila sér símanum sínum. Einnig segir í lýsingunni að Bassi sjáist taka bílstjórann hálstaki og reyna að bíta hann.
Einnig kemur fram í gögnum málsins að bílstjórinn, sem er erlendur, fór fram á hátt fjargjald fyrir að aka Bassa úr miðborg Reykjavíkur upp í Bryggjuhverfi.
Sjá einnig: Bassi Maraj ákærður fyrir líkamsárás á leigubílstjóra – Hafi vafið posasnúru um háls hans og kýlt í ennið
Samkvæmt ákærunni átti atvikið sér stað í Bryggjuhverfinu í Grafarvogi þann 11. febrúar árið 2023. Sagt er að Bassi hafi bitið í hnakka bílstjórans og vinstri öxl, kýlt hann með krepptum hnefa í ennið, tekið hann kverkataki og vafið posasnúru um háls hans. Síðastnefndi verknaðurinn er hættulegur en miðað við myndbandslýsinguna virðist hann vera ósannaður.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Hlaut bílstjórinn tognun á hálsi, blæðingu undir slímhúð hægri auga, bitför og mar á hægri öxl og upphandlegg og yfirborðsáverka á háls og vinstri úlnlið.
Vildi 14 þúsund fyrir túr úr miðbænum upp í Bryggjuhverfi
Leigubílstjórinn fór hann fram á 14 þúsund krónur fyrir að aka Bassa frá miðborg Reykjavíkur að Tangabryggju. Eitt stopp var á leiðinni. Bílstjórinn segir Bassa hafa gengið út úr bílnum án þess að borga en Bassi segist hafa ætlað að ná í vin sinn og fá hann til að greiða fargjaldið. Bassi var óánægður með upphæð fjargjaldsins og taldi það vera of hátt.
Leigubílstjórinn hljóp út á eftir Bassa og tók af honum símann hans. Urðu í kjölfarið átök milli mannanna inni í bílnum þar sem Bassi var að reyna að endurheimta síma sinn.
Ekki náðist í Bassa við vinnslu fréttarinnar en samkvæmt heimildum DV hefur hann haldið fram sakleysi sínu af ákæru um líkamsárás. Í lögregluyfirheyrslu skömmu eftir atvikið sagðist hann ekki hafa lamið eða bitið leigubílstjórann eins og haldið er fram í ákærunni. Hann kvaðst saklaus en þótti leiðinlegt hvernig fór og bað um að fá reikningsupplýsingar til að gera upp fargjaldið.