Indhold
- 1 Suðurhlíðarnar dýrastar
- 2 Mesta hækkunin í Vesturbænum
- 3 Skörp lækkun í Grafarholti
- 4 Lækkun í tveimur hverfum Breiðholts
- 5 Urriðaholtið dýrt en Álftanesið ekki
- 6 Jafnasta verðið í Kópavogi
- 7 Vellirnir dýrastir í Hafnarfirði
- 8 20 dýrustu hverfin á höfuðborgarsvæðinu (fermetraverð í þúsundum króna)
- 9 20 ódýrustu hverfin á höfuðborgarsvæðinu
Gamli Vesturbærinn í Reykjavík er það svæði á höfuðborgarsvæðinu þar sem húsnæðisverð hefur hækkað mest en Suðurhlíðarnar hafa hæsta fermetraverðið. Í einstaka hverfum hefur fasteignaverð rénað.
Þetta má sjá í vefsjá matssvæða hjá Húsnæðis og mannvirkjastofnun. Það er byggt á fasteignamati. DV skoðaði hvaða svæði á höfuðborgarsvæðinu eru þau dýrustu og ódýrustu og hvar breytingarnar hafa verið mestar á milli ára. Hin óformlega rannsókn byggir á fermetraverði fjölbýlishúsnæðis.
Stóru línurnar eru þær að fasteignaverð er hæst vestarlega og miðsvæðis í Reykjavík en lægra í úthverfunum og í nágrannasveitarfélögunum. Fermetraverðið getur hins vegar verið afar misjafnt, jafn vel innan sömu hverfa.
Suðurhlíðarnar dýrastar
Hæsta fermetraverðið er í Suðurhlíðunum í Reykjavík, hverfi sem stundum er kallað hverfið á milli lífs og dauða í ljósi staðsetningu þess á milli Borgarspítalans og Fossvogskirkjugarðs. Þar er fermetraverð fjölbýlis 921 þúsund krónur, um 40 þúsund krónum hærra en nokkurs staðar annars staðar.
Fermetraverðið í Suðurhlíðunum er næstum 200 þúsund krónum hærri en í sjálfu Hlíðahverfinu, þar sem það er 730 þúsund krónur.
Mesta hækkunin í Vesturbænum
Á liðnu ári hefur verðið hins vegar hækkað mest í gamla Vesturbænum, eða Vesturbæ vestan Bræðraborgarstígs eins og hverfið kallast í vefsjánni. Það er um 10,8 prósent og er verðið nú 849 þúsund, það fimmta hæsta á höfuðborgarsvæðinu.
Hækkunin hefur verið mest í Vesturbænum í Reykjavík.
Einnig hefur verðið hækkað mjög stíft á Ægissíðu og í Högunum, eða um 7,7 prósent. Til samanburðar þá hefur verð í Melunum aðeins hækkað um 1,6 prósent og í miðbænum hefur það lækkað um 0,5 prósent.
Á meðal annarra dýrra hverfa miðsvæðis eru Skerjafjörðurinn (882 þúsund), Valsreiturinn (876) og Miðbærinn frá Tjörninni að Snorrabraut (867). Ódýrari svæði miðsvæðis má meðal annars nefna Suður-Þingholtin (757), Háteigshverfið (766) og Háaleiti (682). Seltjarnarnesið er einnig ódýrara en Vesturbærinn og Miðbærinn, sérstaklega svæðið í kringum Eiðistorg og yst á nesinu, þar sem verðið er á bilinu 705 til 719 þúsund krónur.
Skörp lækkun í Grafarholti
Af hverfum austar í borginni er verðið hæst í hinni nýbyggðu Vogabyggð, 823 þúsund krónur fermeterinn. Úlfarsárdalurinn er dýrastur af ystu úthverfum borgarinnar, 773 þúsund. Til samanburðar þá er verðið í Grafarvoginum á bilinu 615 til 704 þúsund, 687 í Grafarholtinu og 690 í Árbænum.
Grafarholt sker sig úr að því leyti að fasteignaverðið hefur lækkað mjög skarpt þar milli ára, eða um tæpt prósentustig. Hvergi er lækkunin jafn mikil nema í Vatnsenda í Kópavogi.
Lækkun í tveimur hverfum Breiðholts
Fyrir utan Kjalarnesið er langódýrasta hverfið í Reykjavík Breiðholtið. Í Fella og Bakkahverfum er verðið aðeins í kringum 590 þúsund og litlu hærra í Hólum og Bergum, það er 616 þúsund. Seljahverfið er stærsta hverfið í Breiðholti en þar kostar fermeterinn 632 þúsund krónur í fjölbýli.
Í tveimur hverfum Breiðholts hefur verð lækkað á milli ára, það er Hólum og Bergum annars vegar og Fellahverfi hins vegar. Um um það bil hálft prósentustig.
Fyrir utan Kjalarnes er Breiðholtið ódýrast í Reykjavík.
Eins og áður segir ber Reykjavík höfuð og herðar yfir önnur sveitarfélög þegar kemur að fasteignaverði. Tólf dýrustu hverfin eru í Reykjavík.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Hafa ber þó í huga að í sumum hverfum, til dæmis Arnarnesinu og Flötum í Garðabæ, Neðra Breiðholti í Reykjavík og Leirvogstungu og Reykjahverfi í Mosfellsbæ eru engin fjölbýlishús.
Urriðaholtið dýrt en Álftanesið ekki
Dýrasta hverfið utan Reykjavíkur er Urriðaholtið í Garðabæ, verðið 801 þúsund krónur. Líkt og Valsreiturinn og Vogabyggð í Reykjavík er það nýtt og hratt rísandi hverfi. Verðið hefur einnig hækkað mjög mikið á milli ára í Urriðaholti, eða um 7,2 prósent. En það er langmesta hækkunin utan Reykjavíkur.
Í Garðabæ er verðið einnig nokkuð hátt í Sjálandi (778) og Ásum (761). Verðið í Akrahverfinu (720) og miðbæ Garðabæjar (730) er ögn skárra. Langódýrasta hverfið í Garðabæ er hins vegar Álftanesið, sveitarfélag sem var innlimað þegar það stefndi í gjaldþrot árið 2012. Þar er fermetraverðið 686 þúsund krónur.
Jafnasta verðið í Kópavogi
Af sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu er fasteignaverðið jafnast í Kópavogi. Dýrustu svæðin eru gamli Vesturbær Kópavogs, Hjallarnir og Smárahverfið. Þar er verðið í kringum 760 þúsund krónur.
Í Kópavogi er verðið nokkuð jafnt og nokkuð á miðjunni hvað varðar höfuðborgarsvæðið.
Kórahverfið er það ódýrasta í Kópavogi, 661 þúsund, og er munurinn á því dýrasta og ódýrasta því aðeins 100 þúsund krónur. Af öðrum hverfum Kópavogs má nefna Linda og Salahverfi (718), Hvörf og Þing í Vatnsenda (681) og gamla Austurbæinn (712).
Vellirnir dýrastir í Hafnarfirði
Verðið í Hafnarfirði er almennt séð lægra en í áðurnefndum sveitarfélögum, enda lengst frá miðborg Reykjavíkur. Verðið er þó mjög misjafnt innan bæjarins.
Dýrasta hverfið í Hafnarfirði eru Vellirnir, sem eru syðsta hverfið en jafn framt það nýjasta. Þar kostar fermetrinn 708 þúsund krónur og er það eina hverfið sem fer yfir 700 þúsund krónurnar.
Fermeterinn er almennt séð billegastur í Hafnarfirði þó að mikill munur sé á milli hverfa.
Flest hin hverfin komast á lista yfir ódýrustu hverfi höfuðborgarsvæðisins. Lægst er verðið í Hvömmum (565) og einnig er það mjög lágt á Hvaleyrarholti (590).
Meðalverð í stærstum hluta Hafnarfjarðar, það er Miðbænum, Vesturbænum og stórum hluta Norður og Suðurbæjar er verðið 686 þúsund. Lægra er það í Setbergi (676), Áslandi (671), Börðum (667) og Vöngum (614).
Í Miðbæ Mosfellsbæjar er fermetraverðið 735 þúsund. Öllu ódýrari eru Höfðar og Hlíðar (708) og Teigar og Krikar (622).
20 dýrustu hverfin á höfuðborgarsvæðinu (fermetraverð í þúsundum króna)
- Suðurhlíðar 921
- Skerjafjörður 882
- Valsreitur 876
- Miðbær frá Tjörn að Snorrabraut 867
- Vesturbær vestan Bræðraborgarstígs 849
- Holtahverfi 843
- Vogabyggð 823
- Ægissíða og Hagar 811
- Verkamannabústaðir og Grund 810
- Fossvogur 810
- Túnahverfi 808
- Hofsvallagata norðan Landakots 805
- Garðabær: Urriðaholt 801
- Tjarnir og Grandi 797
- Kringlan 783
- Blesugróf 778
- Garðabær: Sjáland 778
- Seltjarnarnes 777
- Skjól 774
- Úlfarsárdalur 773
20 ódýrustu hverfin á höfuðborgarsvæðinu
- Kjalarnes 497
- Hafnarfjörður: Hvammar 565
- Fellahverfi 589
- Hafnarfjörður: Hvaleyrarholt 590
- Bakkahverfi 591
- Hafnarfjörður: Vangar 614
- Garðabær: Staðir 615
- Hólar og Berg 616
- Mosfellsbær: Teigar og Krikar 622
- Seljahverfi 632
- Hamrar, Foldir og Hús í Grafarvogi 659
- Kópavogur: Kórahverfi 661
- Ártúnsholt og Höfðar 662
- Hafnarfjörður: Börð 667
- Hafnarfjörður: Ásland 671
- Hafnarfjörður: Setberg 676
- Kópavogur: Hvörf og Þing 681
- Háaleiti og Skeifa 682
- Garðabær: Álftanes 686
- Bakkahverfi 686