Portúgalska höfuðborgin Lissabon bætist við leiðakerfi Icelandair í vetur. Flogið verður tvisvar í viku til borgarinnar, á mánudögum og föstudögum, frá 11. október.
„Lissabon er spennandi áfangastaður sem býr yfir ríkri sögu, heillandi hverfum, fallegum arkitektúr og matarmenningu og þar er að finna þó nokkra staði sem eru á heimsminjaskrá UNESCO. Veðurfar er milt og borgin er áhugaverður áfangastaður hvort sem farþegar vilja fara í menningarlega borgarferð, verslunarferð, eða sólarlandaferð,“ segir í tilkynningu Icelandair.
Fram kemur í tilkynningunni að af þessu tilefni hafi Icelandair og portúgalska flugfélagið TAP skrifað undir viljayfirlýsingu um samstarf um sammerkt flug.
„Félögin hafa átt í samstarfi um árabil en með sammerktu flugi munu viðskiptavinir geta nýtt þægilegar tengingar á milli leiðakerfa flugfélaganna og aukið úrval tengimöguleika. Þannig opnast hentugar tengingar frá Íslandi til Lissabon, en jafnframt áfram til áfangastaða TAP víða um heim. Bæði flugfélögin er þekkt fyrir að bjóða upp á svokallað Stopover sem gerir farþegum kleift að upplifa heimalönd félaganna þegar ferðast er á milli áfangastaða.“
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í tilkynningunni að það sé ánægjulegt að bæta Lissabon við öflugt leiðakerfi Icelandair og um leið auka samstarfið við TAP.
„Lissabon er mjög spennandi áfangastaður og aukið samstarf flugfélaganna mun bæta við þægilegum tengimöguleikum til Brasilíu og Afríku. Við leitumst við að gera samstarfssamninga við flugfélög sem leggja áherslu á góða þjónustu og spennandi ferðatækifæri og það gerir TAP svo sannarlega.“