„Það þarf oft alvarlega atburði svo stjórnvöld vakni við og grípi til aðgerða,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir varaþingkona um óhugnanlegt atvik sem átti sér stað í Tungudal í Skutulsfirði á föstudag. Eldur kom þá upp í rútu skömmu eftir að rútan kom út úr Vestfjarðargöngum.
Ljóst má vera að illa hefði getað farið hefði eldurinn komið upp örlítið áður, eða þegar rútan var í inni í göngunum. Lilja segir að þessi atburður hljóti að vekja stjórnvöld svo ráðist verði í viðunandi ráðstafanir í göngunum sem hún segir að sé eins og rússnesk rúlletta. Umferð sé þar mikil og göngin þar að auki einbreið að stærstum hluta.
Lilja, sem var á ferð á þessum slóðum þegar atvikið varð, segir í aðsendri grein á Vísi að það megi kalla guðsmildi að rútan hafi ekki verið inni í göngunum og farþegar hafi komist út.
„Eins og aðstoðarslökkviliðsstjóri komst að orði „að hann vildi ekki hugsa þá hugsun til enda ef eldurinn hefði kviknað í einbreiðum göngunum“. Rútan sem brann var í samfloti með fjörum öðrum rútum með alls um 300 farþega og auk þess mikil umferð annara bíla á föstudegi. Það hefði verið óvinnandi vegur að athafna sig í einbreiðum hluta gangnanna, göngin hefðu fyllst af baneitruðum reyk mikill eldsmatur í klæðningu gangaveggja og blásturskerfið magnar eldinn og engin flóttaleið. Nei ég held að enginn vilji hugsa þessa hugsun til enda en við þurfum samt að gera það,“ segir hún.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Lilja er þeirrar skoðunar að koma þurfi inn í samgönguáætlun strax áformum um breikkun einbreiðra ganga og þá hvortveggja Breiðadals- og Súgandafjarðarleggsins. Segir hún að ráðamenn hafi ekki barist fyrir því sem skyldi og atvikið á föstudag verði vonandi til þess að vekja menn.
„Það koma um 200 skemmtiferðaskip til Ísafjarðar ár hvert með þúsundir farþega og miklir farþegaflutningar eru með rútum í skoðunarferðir í hverri viku um svæðið og í gegnum Vestfjarðargöng og ekki síður í gegnum Súgandafjarðarafleggjarann ásamt miklum fiskflutningum.“
Lilja ítrekar að þessi alvarlegi atburður kalli á aðgerðir og ekki megi sópa honum undir teppið.
„Hér fá stjórnvöld alvarlega viðvörun um atburði sem hefðu getað orðið hörmulegir ef þeir hefðu gerst nokkrum mínútum fyrr og tækifæri á að áhættuminnka afleiðingar slysa sem geta orðið í stórhættulegum einbreiðum göngum sem eru ólögleg í dag. Strax þarf að gera þær ráðstafanir sem draga úr slysahættu og koma breikkun einbreiðra Vestfjarðargangna á dagskrá í nútíma en ekki í fjarlægri framtíð það getur orðið dýrkeypt.“