lørdag, marts 15, 2025

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Svona verður veðrið um áramótin – Eins gott að klæða sig vel

Það verður kalt í veðri þegar nýtt ár gengur í garð og er útlit fyrir að frostið á höfuðborgarsvæðinu fari í tveggja stafa tölu á gamlárskvöld.

Í dag má gera ráð fyrir suðvestan 10 til 18 metrum á sekúndu og slydduéljum eða skúrum sunnan- og vestantil framan af morgni. Á norðaustanverðu landinu verður aftur á móti úrkomulítið.

Um helgina fer veður svo kólnandi og á sunnudag, 29. desember, er gert ráð fyrir 5 til 20 stiga frosti á landinu þar sem kaldast verður inn til landsins. Það verður bjart á suðurhelmingi landsins og hægur vindur.

Á mánudag verður austlæg átt og snjókoma með köflum en norðlægari og dálítil ég norðaustanlands, að því er segir á vef Veðurstofu Íslands. Talsvert frost verður áfram um allt land. Og um gamlársdag og nýársdag segir í spá Veðurstofunnar:

„Fremur hæg norðlæg og dálítil él á Norður- og Austurlandi, en annars yfirleitt bjartviðri. Áfram kalt í veðri.“

Samkvæmt spákorti Veðurstofunnar klukkan 12 á miðnætti á gamlárskvöld má gera ráð fyrir 14 stiga frosti á höfuðborgarsvæðinu, 12 stiga frosti á Akureyri og 9 stiga frosti á Egilsstöðum. Nýja árið heilsar einnig með talsverðu frosti og þannig má gera ráð fyrir 12 stiga frosti í hádeginu á nýársdag á höfuðborgarsvæðinu og 8 stiga frosti norðan heiða.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Suðvestlæg eða breytileg átt, 5-13 m/s og víða dálítil él. Gengur í norðan 10-15 með snjókomu eða éljagangi uppúr hádegi, fyrst norðvestantil, en rofar til sunnan heiða. Frost 1 til 10 stig, minnst við sjávarsíðuna.

Á sunnudag: Norðlæg átt, 3-8 m/s og skýjað með köflum, en 8-15 m/s og él norðaustanlands fram á kvöld. Frost 5 til 20 stig, kaldast inn til landsins.

Á mánudag: Austlæg átt snjókoma með köflum, en norðlægari og dálítil él norðaustanlands. Talsvert frost um allt land.

Á þriðjudag (gamlársdagur) og miðvikudag (nýársdagur): Fremur hæg norðlæg og dálítil él á Norður- og Ausutrlandi, en annars yfirleitt bjartviðri. Áfram kalt í veðri.

Á fimmtudag: Útlit fyrir hæga vinda, bjartviðri og hörkufrost.

Populære artikler