mandag, december 23, 2024

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Tvö börn flutt á barnaspítalann eftir að hafa borðað nammi sem innihélt THC

Tvö börn voru flutt á Barnaspítala Hringsins í gær eftir að hafa borðað gúmmíbangsa sem reyndust innihalda THC. THC er virka efnið í kannabis.

Ekki koma nánari upplýsingar fram í skeyti lögreglu nú í morgunsárið, eins og varðandi líðan barnanna og hvaðan sælgætið kom.

Alls voru 77 mál skráð í LÖKE á tímabilinu frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan fimm í morgun. Töluvert var um tilkynningar um hin ýmsu atvik, aðstoðarbeiðnir vegna veikinda þar á meðal og vegna fólks í annarlegu ástandi.

Tvö vinnuslys komu til kasta lögreglu. Í hverfi 104 datt kona og fékk höfuðhögg en meiðsli hennar reyndust minniháttar. Í Kópavogi ók einstaklingur á rafmagnshjóli á bakk og er líklega fótbrotinn eftir slysið. Hann var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler