lørdag, april 4, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Afar ósáttur við stórtónleika á Þingvöllum: „Stjórnvöld gerðu rétt með að aflýsa þessu óráði“

Hjörleifur Guttormsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, er afar gagnrýninn á þá ákvörðun Þingvallanefndar að heimila stórtónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar.

Samningar voru undirritaðir milli nefndarinnar og umboðsmanni hljómsveitarinnar á dögunum, en tónleikarnir fara fram þann 20. Júní næstkomandi og ert gert ráð fyrir að allt að tuttugu þúsund gestir muni mæta á svæðið.

Stórt og afdrifaríkt mál

Hjörleifur, sem er náttúrufræðingur, átti sjálfur sæti í Þingvallanefnd á árunum 1980 til 1992, en hann gagnrýnir fyrirhugaða tónleika harðlega í aðsendri grein sem birtist í Morgunblaðinu í gær.

„Þjóðin fékk um það vitneskju úr fjölmiðlum um liðna helgi (27. mars) að Þingvallanefnd hefði heimilað einkaaðilum tónleikahald á þeirra eigin vegum og gegn gjaldtöku í Þjóðgarðinum á Þingvöllum þann 20. júní næstkomandi. Opinber kynning á þessum áformum hafði engin verið, áður en þessi ákvörðun var tekin og kynnt, að því er virðist samhljóða af nefndinni, en forsætisráðherra er áður sagður hafa lýst sig samþykkan henni.“

Hjörleifur segsir að hér sé um stórt og afdrifaríkt mál að ræða sem stangist á við anda og eðli laganna um friðun Þingvalla. Í 1. grein laganna segi til dæmis að svæðið sé „friðlýstur helgistaður allra Íslendinga“

„Þar hafa engir hliðstæðir viðburðir átt sér stað, enda segir í 4. grein: „Hið friðlýsta land skal vera undir vernd Alþingis og ævinleg eign íslensku þjóðarinnar. Það má aldrei selja eða veðsetja.“ Hvernig fær það staðist að heimila nú einkaaðila forræði til athafna og gjaldtöku á kjarna þessa verndaða sögustaðar, þar sem miðaverð er sagt verða um 20 þúsund krónur í forsölu?“

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Kröfurnar í botni

Hjörleifur segir að þegar hann átti sæti í Þingvallanefnd á sínum tíma hafi stefna nefndarinnar verið mörkuð í skipulagsmálum þjóðgarðsins.

„Við kjarna þeirrar stefnumörkunar hefur ekki verið hróflað síðan. Með ákvörðun um stórtónleika á vegum einkaaðila er nú lagt inn á nýja og óræða braut, sem auðvitað hefði fordæmisgildi. Stjórnvöld gerðu rétt í að aflýsa þessu óráði og hlúa þess í stað að sjálfbærri stefnu fyrir þennan helgistað.“

Einar Á. E. Sæmundsen þjóðgarðsvörður sagði í fréttum RÚV á dögunum að gerðar verði ráðstafanir til að vernda landsvæðið. Þess verði gætt að fólk gangi á þar til gerðum göngustígum og sé ekki í óspilltri náttúru.

„Við setjum allar kröfurnar í botn gagnvart viðburðarhaldaranum og erum í góðu samstarfi við hann, og það verða sett upp virk öryggisráð undir forystu lögreglunnar á Suðurlandi,“ sagði Einar.

Populære artikler