Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nauðgun en honum er gefið að sök að hafa aðfaranótt laugardagsins 19. febrúar árið 2022 haft samræði við konu á heimili hennar án hennar samþykkis og með því að beita hana ólögmætri nauðung.
Ákærði kyssti andlit konunnar, saug háls hennar og geirvörtur, dró niður um hana buxur og hafði við hana samræði og skeytti því engu þó konan segði honum ítrekað að hún vildi þetta ekki, en ákærði notfærði sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart konunni, sem gat ekki spornað við verknaðinum sökum andlegrar fötlunar. Af þessu hlaut konan mar á hálsi.
Fyrir hönd brotaþola er krafist 3,5 milljóna króna í miskabætur.
Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrr í vikunni en réttarhöld í málinu eru fyrir luktum dyrum.

