onsdag, februar 18, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Ákærður fyrir að nauðga sofandi konu á heimili sínu

Maður um þrítugt hefur verið ákærður fyrir að hafa nauðgað fyrrverandi ástkonu sinni á heimili sínu. Meint brot var framið sumarið 2023.

Í ákæru héraðssaksóknara segir að ákærði hafi haft samræði og önnur kynferðismök við konuna án hennar samþykkis og segir síðan orðrétt: „…ákærði hafði við hana samræði og endaþarmsmök þar sem hún lá sofandi í rúmi og notfærði sér að hún gat ekki spornað við verknaðinum sökum svefndrunga.“

Fyrir hönd brotaþola er krafist 3,5 milljóna króna í miskabætur.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 24. febrúar næstkomandi en réttarhöld í málinu eru lokuð.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler