fredag, januar 16, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Alvarleg líkamsárás á Akureyri í nótt

Þrír voru handteknir vegna líkamsárásar á Akureyri í nótt þar sem hnífi var beitt. Tveir hinna handteknu eru með alvarlega áverka.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. Ekki liggur fyrir hvort farið verður fram á gæsluvarðhald yfir hinum handteknu en í tilkynningunni segir:

„Í nótt var tilkynnt um alvarlega líkamsárás á Akureyri þar sem hnífi hafi verið beitt. Þrír aðilar voru handteknir. Tveir hinna handteknu reyndust vera með alvarlega áverka og voru þeir fluttir til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri.

Einn hinna handteknu var með tvo stunguáverka og annar með umtalsverða áverka í andliti. Að læknisskoðun lokinni voru aðilar fluttir í fangageymslu lögreglustöðvarinnar á Akureyri.

Rannsókn málsins er á frumstigi. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verður fram á gæsluvarðhald.“

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler