lørdag, december 20, 2025

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Amnesty lýsir yfir áhyggjum af máli Anítu sem hefur setið gæsluvarðhaldi síðan í byrjun september

Íslandsdeild Amnesty International gerir alvarlegar athugasemdir við mál ungrar konu, Anítu Óskar Haraldsdóttur, sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í Fangelsinu Hólmsheiði síðan 2. september, á grundvelli ákvæða um síbrotagæslu. Hefur hún töluvert af þeim tíma setið í eingangrun.

Sjá einnig: Klara segir lögregluna hafa lagt dóttur hennar í einelti – „Hún var ekki vandræðabarn, hún var rólegasta barn í heimi“

Lýsir Amnesty yfir þungum áhyggjum og bendir á að samkvæmt alþjóðalögum skal aðeins beita einangrunarvistun í undantekningartilvikum. Tilkynning Amnesty er eftirfarandi:

„Vegna frétta um ungu konuna sem þjáist af þunglyndi og ýmsum röskunum og hefur samkvæmt þeim  verið meira eða minna í einangrun í fangelsinu á Hólmheiði vill stjórn Íslandsdeildar Amnesty International koma eftirfarandi á framfæri.

Mál konununna hefur vakið athygli okkar og áhyggjur. Við minnum á að samkvæmt alþjóðalögum skal  beiting einangrunarvistar heyra til algjörra undantekninga, hún skal vara í sem skemmstan tíma og ávallt vera háð ströngum skilyrðum. Neikvæð heilsufarsáhrif geta komið í ljós eftir aðeins örfáa daga í  einangrun. Sjálfsvígshætta og sjálfsskaði eykst á fyrstu tveimur vikum einangrunarvistar. Hætta á heilsutjóni eykst með degi hverjum í einangrun.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Í samræmi við alþjóðlegt bann gegn pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi  meðferð eða refsingu ætti aldrei að hafa fólk í viðkvæmri stöðu í einangrunarvist, svo sem fólk með fötlun, geðraskanir eða taugaþroskaraskanir, þar sem einkenni gætu versnað við einangrun sem er því  líkleg til að valda skaða. Að sama skapi er það skýrt brot á banni Sameinuðu þjóðanna gegn pyndingum að einstaklingur sæti langvarandi einangrunarvist, þ.e. lengur en í 15 daga

Amnesty International minnir jafnframt á gagnrýni CPT-nefndar Evrópuráðsins, sem heimsótti Ísland í  maí 2019 og gerði úttekt á fangelsum landsins. Nefndin lýsir þar yfir alvarlegum áhyggjum yfir því að fangar á Íslandi hafi mjög takmarkaðan aðgang að geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu. Nefndin kallaði á  íslensk stjórnvöld að grípa tafarlaust til aðgerða til að tryggja að fangar með geðraskanir sem þurfa á geðheilbrigðismeðferð að halda séu vistaðir á viðeigandi stofnunum með fullnægjandi þjónustu.

Við köllum eftir því að íslensk stjórnvöld komi tafarlaust á mikilvægum umbótum og tryggi rétt þeirra  sem sitja í fangelsi að vera frjáls undan pyndingum og annarri grimmilegri, ómannlegri eða vanvirðandi meðferð eða refsingu.“

Populære artikler