Einstaklingur sem fluttur var á slysadeild eftir eldsvoða í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ í gærkvöldi er þungt haldinn á gjörgæsludeild og haldið sofandi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Tilkynnt var um eldinn klukkan 22:54 í gærkvöldi og fóru lögreglu og sjúkra- og slökkvilið á vettvang á hæsta forgangi.
Þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang var einn íbúi enn inni í húsinu en aðrir íbúar hússins komnir út. Skömmu síðar fannst íbúinn og var fluttur með sjúkrabifreið til Reykjavíkur.
Í tilkynningu lögreglu kemur fram að vettvangsrannsókn sé í gangi hjá lögreglu og nýtur hún aðstoðar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Þegar fyrstu lögreglumenn komu á vettvang í gær mátti sjá mikinn eld koma frá íbúð á fyrstu hæð hússins. Fjölbýlishúsið er á tveimur hæðum með sex íbúðum.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Í tilkynningunni kemur fram að íbúar hafi fengið áfallahjálp frá Rauða krossinum. Flestir íbúar gátu leitað skjóls hjá ættingjum en Rauði krossinn á Suðurnesjum aðstoðaði aðra með næturgistingu.
Sjö hundar drápust í eldsvoðanum, einn lifði og einn er ófundinn.


