onsdag, februar 11, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Elías fyrir dómi vegna ofbeldis gegn 12 ára dreng – Segir að árás hafi verið gerð á heimili sitt

Ath. Greint er frá vitnisburði Elíasar fyrir Héraðsdómi Reykjaness í morgun neðar í fréttinni.

Aðalmeðferð hófst í morgun í sakamáli gegn rúmlega sextugum verkfræðingi í Reykjanesbæ, Elíasi Georgssyni, sem ákærður er fyrir brot gegn frjálsræði, líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum vegna atviks sem átti sér stað sunnudagskvöldið 26. febrúar árið 2023. Er Elías í ákæru héraðssaksóknara sakaður um að hafa veist með ofbeldi að 12 ára dreng, skammt frá heimili Elíasar, elt drenginn uppi, fellt hann í jörðina og haldið honum föstum. Dregið drenginn síðan á fætur og tekið hann gegn vilja sínum inn á heimili Elíasar við götuna Vatnsholt í Reykjanesbæ og læst útihurðinni þar til nágranni kom og færði drenginn af heimilinu.

Drengurinn hlaut mar á innri upphandlegg, á framhandlegg og lófasvæði hægri handar, skrámur og hruflaða húð á sköflungi beggja vegna, mar aftan á kálfa beggja vegna og framan á hné og blámar og hruflaða húð á hægra hné. Segir í ákæru að með háttsemi sinni hafi Elías sýnt drengnum yfirgang og ruddalegt athæfi auk ógnandi og vanvirðandi framkomu.

Áður ákærður fyrir sambærileg brot

Málið vakti mikla athygli fyrir um þremur árum er RÚV greindi frá því að maður í Reykjanesbæ hefði verið kærður til lögreglu fyrir að hafa ráðist á dreng og frelsissvipt hann fyrir að gera dyraat hjá sér.

DV greindi frá því að Elías hafði tvisvar áður verið kærður fyrir sambærileg brot:

Elías frelsissvipti og réðst á 11 ára dreng vegna dyraats – Hefur ítrekað beitt hrekkjalóma ofbeldi

Í öðru málinu lenti Elías í átökum við 17 ára pilt, rotaði hann og pilturinn hlaut stærðarinnar glóðarauga og æð sprakk í auga hans. Unglingurinn átti að hafa gert dyraat heima hjá Elíasi sem fór heim til unglingsins.  „Ég reif í hann en hann fleygði mér í jörðina og ég rotaðist. Eftir að ég rotaðist hélt hann áfram að kýla mig, félagar mínir komu mér til bjargar og ég rankaði við mér í sjúkrabílnum,“ sagði unglingurinn við blaðamann DV í frétt blaðsins árið 2008. DV hefur ekki upplýsingar um hvernig því máli lauk, en fram kemur í frétt blaðsins að árásin var kærð til lögreglu.

Í hinu málinu var Elías dæmdur fyrir ólögmæta nauðung gegn 15 ára dreng sem hann frelssissvipti í kjölfar þess að hópur drengja kastaði skoteldi í garð hans.

Nágranni sagði hann lagðan í einelti

„Hlutirnir eru ekki bara svartir og hvítir, þetta er eineltismál líka“ sagði ónefndur, fyrrverandi nágranni Elíasar í viðtali við DV árið 2023, er þetta mál sem nú liggur fyrir dómi kom upp.

Sagði hann Elías vera dagfarprúðan en það væri auðvelt að slá reitt fólk út af laginu. „Hlutirnir eru ekki svartir og hvítir. Ég þekki þennan mann ekkert nema það að ég veit bara að við stríddum honum allir, ég og vinir mínir. Það er önnur hlið á þessu. Þetta er eineltismál líka. Börnin hans voru líka lögð í einelti,“ segir fyrrverandi nágranninn.

Segir að árás hafi verið gerð á heimili sitt

Elías neitar sök í málinu en hann bar vitni fyrir dómi í morgun. Saksóknari bað hann að lýsa atburðarásinni. Sagðist hann hafa verið heima með konunni sinni. Sagði hann að gerð hafi verið árás á heimilið, allir gluggar barðir, kona hans hafi orðið mjög hrædd. Elías telur að drengirnir hafi barið í gluggana hjá honum með bareflum, því hávaðinn hafi verið slíkur. Hins vegar segist hann aldrei hafa séð bareflin. Hann segist hafa  farið út í bíl og ekið í burtu og lagt bílnum á tilteknum stað nálægt heimilinu. Þar komu meintir árásarmenn, sem voru fjórir drengir niður í 12 ára aldur, og sagði hann þá hafa verið að undirbúa nýja árás á heimilið. Tók hann myndir af drengjunum og sagðist hann hafa heyrt þá ræða um að gera aðra árás á heimilið. Sagði hann að einn piltanna hafi ýtt öðrum pilti úr hópnum niður í jörðina og fóru hinir þrír þá burtu.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Í ákæru er Elías sakaður um að hafa fellt drenginn í jörðina en hann heldur því fram að félagi drengsins hafi ýtt honum niður í jörðina.

Hann nálgaðist drenginn sem lá í jörðinni og tók mynd af honum. Sagði hann drengnum að hann vildi að hann kæmi með sér heim til sín til að biðja konuna sína afsökunar. Segir hann að drengurinn hafi fallist á þetta og fóru þeir heim til Elíasar. Segir hann að drengurinn hafi sagt að hinir drengirnir hafi manað hann til verksins og að þetta hafi verið TikTok leikur. Segist Elías þá hafa hringt í lögregluna.

Elías sagði síðan að nágranni hafi brotið rúðu hjá sér og ruðst inn með ógnandi tilburðum, en viðkomandi kom til að fjarlægja drenginn af heimilinu og gerði það.

Saksóknari spurði Elías nánar út í fullyrðingu hans um að háttsemi drengjanna hafi verið árás á heimilið. Segir hann að drengirnir hafi verið að reyna að brjóta rúður á heimilinu, þeir hafi barið það fast í gluggana að það væri augljóst. Segir hann að eiginkona hans hafi verið í áfalli yfir árásinni, hún hafi varla náð andanum, slíkt hafi uppnámið hafi verið.

Drengurinn sem Elías kom með á heimili sitt sagðist margoft ekki hafa gert neitt en aðspurður sagðist Elías hafa séð hann að verki. Hann þekkti alla fjóra drengina í sjón og sá þá fyrir utan gluggana.

Elías sagði að margar aðrar árásir hafi verið gerðar á heimilið dagana á undan þar sem TikTok leikur var í gangi sem snerist um að ráðast á tiltekin heimili. Er saksóknari spurði hann hvers vegna hann hefði ekið burtu á bíl sagði hann það hafa verið viðleitni til að standa drengina að verki við mögulegar árásir á önnur hús.

Elías sagði við ítrekuðum spurningum saksóknara að hann hafi heyrt drengina mana hver annan upp í að gera aðra árás á heimilið.

Aðspurður hvers vegna hann hefði tekið myndir af drengjunum sagðist hann hafa gert mistök í fortíðinni með því að mynda ekki árásir ungmenna á hann og heimili hans.

Elías segir að þegar lögregla kom á vettvang hafi hann verið handtekinn. Fjórir lögreglumenn hafi ruðst inn á heimilið og handtekið hann fyrir framan eiginkonu hans.

Saksóknari spurði Elías út í fullyrðingar um að gerð hafi verið mörg dyraöt í öðrum húsum dagana fyrir atvikið. Hann sagðist ekki hafa orðið vitni að því sjálfur þar sem hann væri í burtu í vinnu alla daga, en börnin hans og kunningjar hafi greint frá þessu. Hann sagði að þetta væri TikTok leikur sem hefði verið í gangi en hann sagðist ekki vita nákvæmlega hverjir hefðu verið að verki. Hins vegar hafi drengirnir sem réðust á hans heimili rætt um það sín á milli að ráðast á fleiri heimili þetta kvöld.

Populære artikler