onsdag, februar 11, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Hættuleg hnífaárás á vinnusvæði í Suðurnesjabæ

Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás miðvikudaginn 15. maí 2024.

Atvikið átti sér stað utandyra á vinnusvæði í Suðurnesjabæ. Lagði ákærði til brotaþola með hnífi og stakk hann nokkrum sinnum í líkamann. Hlaut brotaþoli grunna skurði á hægri sköflungi, á hægra læri og í kvið, við nafla, sem og aftan til á hægri öxl. Þurfti að sauma manninn 17 sporum.

Fyrir hönd brotaþola er krafist miskabóta að fjárhæð þrjár milljónir króna.

Aðalmeðferð verður í málinu við Héraðsdóm Reykjaness næstkomandi föstudag.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler