Heiða Ósk, Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, stofnandi Facebook-hópsins „Áfram stelpur“, segist hafa orðið fyrir áreitni af hálfu Írisar Helgu Jónatansdóttur, konu sem handtekin var í gær vegna gruns um að hún hefði látið birta falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu, um mann sem er ekki látinn.
Íris Helga hefur verið handtekin í kjölfar dánartilkynningarinnar og er grunuð um umsáturseinelti
Sjö manns hafa kært Írisi Helgu til lögreglu fyrir umsáturseinelti og í gær var hún handtekin vegna auglýsingarinnar í Morgunblaðinu. Af því tilefni birti Heiða Ósk eftirfarandi pistil á Facebook-síðu sinni í gærkvöld:
„Það er léttir yfir mörgum fjölskyldum í dag – þar á meðal minni. Tímabundinn, en velkominn léttir engu að síður.
Það hefur líklega ekki farið fram hjá þeim sem þekkja mig að vegna vinnu minnar hefur nafn mitt ítrekað ratað í samfélags- og fjölmiðla. Verkefnin sem ég hef tekist á við eru vissulega mis hávær og lifa mis lengi. Síðustu mánuði hef ég þurft að takast á við afleiðingar þess að setja geranda mörk. Um er að ræða konu sem hefur ítrekað verið tengd við mál þar sem einstaklingar og fjölskyldur hafa upplifað sig beitta áreitni um árabil.
Ég hef sjálf aðeins þurft að takast á við þetta í nokkra mánuði. Margir þeirra sem hafa haft samband við mig hafa hins vegar þurft að lifa með þessu árum saman. Kerfið hefur brugðist þessu fólki – með skelfilegum afleiðingum.
Kerfið hefur líka brugðist henni, meðal annars með því að grípa ekki nægilega snemma inn í og veita viðeigandi úrræði. Í dag var almenningi tilkynnt að lifandi maður væri látinn. Á sama tíma fengu þolendur hennar enn eina staðfestingu á því hvað gerist þegar yfirvöld stíga ekki inn af alvöru. En í dag fengust líka löngu tímabærar fréttir: að loksins hafi yfirvöld stigið inn – af þeirri alvöru og þeim þunga sem þessi mál krefjast.
Þetta er vissulega ekki endirinn – en ég ætla að trúa því að þetta sé upphafið að endinum.
Heiða Ósk stofnandi Áfram stelpur“
Héraðsdómur hafnaði beiðni lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir Írisi Helgu. Heiðu Ósk þykir sú niðurstaða vera sérkennileg:
Click here to preview your posts with PRO themes ››
„Maður hélt loksins að nú yrði gripið inn af alvöru. Forsendur fyrir gæsluvarðhaldi eru svo sannarlega til staðar. Svo ég átta mig ekki á þeirri niðurstöðu.“

Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir. Mynd: Facebook.


