onsdag, marts 4, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Kona varð fyrir hættulegri líkamsárás í Kópavogi

Maður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart konu á fertugsaldri, aðfaranótt sunnudagsins 9. júlí árið 2023, utandyra á Kópavogsbraut í Kópavogi.

Maðurinn er í ákæru héraðssaksóknara sagður hafa veist að konunni og slegið hana a.m.k. einu sinni með krepptum hnefa í höfuðið, þannig að hún féll aftur fyrir sig í götuna. Hann er síðan sagður hafa sparkað í höfuð hennar þar sem hún lá í götunni. Brotaþoli hlaut nefbrot og bólgur og mar í andliti í árásinni.

Fyrir hönd konunnar er krafist skaða- og miskabóta að fjárhæð tæplega 2,2 milljónir króna.

Þingfesta átti málið við Héraðsdóm Reykjavíkur í morgun, þriðjudaginn 3. mars, en vegna veikinda hefur þingfestingu verið frestað þar til síðar í mánuðinum.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler