tirsdag, marts 10, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Meint hópnauðgun á Akureyri sögð einstaklega hrottaleg

Þrír menn eru í haldi lögreglunnar á Akureyri grunaðir um kynferðisbrot gegn konu á þrítugsaldri, á hóteli á Akureyri á aðfaranótt sunnudags.

Nútíminn greinir frá því að brotið hafi verið tekið upp á myndband sem hafi farið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Heimildir DV í málinu staðfesta þetta.

DV greindi fyrst frá málinu síðdegis á sunnudag. Á þeim tíma var einn maður í haldi lögreglu, Húsvíkingur á þrítugsaldri. Kemur þar einnig fram að áverkar voru á konunni eftir árásina og fékk hún aðhlynningu á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Lögreglan á Akureyri staðfesti jafnframt við DV að málið væri til rannsóknar en gat ekki gefið frekari upplýsingar.

Heimildir DV í dag herma að meint brot hafi verið einstaklega hrottalegt og hafi mennirnir misþyrmt konunni klukkustundum saman.

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir mönnunum þremur en DV mun flytja frekari fréttir af málinu næstu daga.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler