onsdag, februar 4, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Miðaldra Þjóðverji í vanda eftir handtöku á Akureyri

Héraðssaksóknari hefur ákært Þjóðverja á fimmtugsaldri fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot eftir að maðurinn flutti inn til landsins tæplega 53 kg af hassi, ætluðum til söludreifingar hér á landi.

Ákærði flutti efnin frá Spáni til Danmerkur og þaðan með farþegaferjunni Norrænu til Seyðisfjarðar, í bíl af gerðinni Peugot. Fíkniefnin voru falin í sílsum bílsins og í leynihólfi á milli vélar- og farþegarýmis.

Eftir komuna til landsins keyrði Þjóðverjinn til Akureyrar þar sem hann var handtekinn fimmtudaginn 13. nóvember árið 2025, en lögreglan fann efnin við leit í bílnum.

Fyrir utan að krefjast refsingar yfir manninum er krafist upptöku á efnunum, á bílnum hans og snjallsíma mannsins en hann er sagður hafa notað símann við brotið.

Málið var þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur fyrr í dag.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler