søndag, marts 8, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Nýjar vendingar í eineltismálinu – Stúlkunni heitið vernd en forsprakkinn sýnir litla iðrun

Fundir hafa átt sér stað í tengslum við mál sem varðar svæsið einelti gegn 11 ára stúlku í Kópavogi og hefur verið í fréttum DV undanfarið. Í gær hittust annars vegar þolandinn, foreldrar hennar og Elsa Kristinsdóttir, sem hefur komið fram fyrir hönd fjölskyldunnar í málinu, og hins vegar forpsrakki eineltisins og forráðamenn hennar, á heimili hinna síðarnefndu.

Sjá einnig: Hópur ungmenna ofsækir 11 ára stelpu í Kópavogi – „Beinlínis verið að hvetja krakka til að sitja um hana“

Í frétt DV um málið síðasta sunnudag greindi frá því að í um það bil ár hefur 11 ára stúlka í Kópavogi verið lögð í einelti af hópi barna og ungmenna. Áreitnin hefur stigmagnast og náði líklega hámarki  fimmtudaginn 19. febrúar þegar yfir 10 manna hópur barna og unglinga veittist að henni. Var hún flutt á slysadeild eftir árásina þar sem óttast var að hún væri nefbrotin, svo reyndist ekki vera en hún var með sjáanlega áverka.

Myndband frá aðdraganda og upphafi árásarinnar hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. Í kjölfar þess birtu þessir óvinir stúlkunnar myndband á TikTok þar sem börn og ungmenni voru hvött til að sitja fyrir henni og skora á hana í það sem þau kalla „one on one“, það er að segja slagsmál.

Móðir bekkjarsystur þolandans, Elsa Kristinsdóttir, sem hefur verið í sambandi við DV vegna málsins, birti umrætt myndband í nokkrum íbúahópum á Facebook og bað foreldra um að vera vakandi fyrir þeim möguleika að börn þeirra væru á meðal gerenda.

Faðir 14 ára drengs bar þar kennsl á son sinn og urðu þá nokkur straumhvörf í málinu. Faðirinn setti sig í samband við Elsu og því næst við foreldra stúlkunnar, því hann vildi að sonur hans hitti stúlkuna, bæði hana afsökunar og héti henni stuðningi.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Af þeim fundi varð í fyrradag og segir Elsa hann hafa verið mjög ánægjulegan: „Núna á hún eldri vin, stóran og sterkan strák úr Breiðholti sem verndar hana,“ segir hún, en pilturinn skildi símanúmer sitt eftir hjá henni og sagði henni að hringja í sig ef hún verður fyrir áreiti af hálfu hópsins, sem pilturinn hefur núna snúið baki við. Hann muni þá koma á vettvang og vernda hana.

Faðir drengsins setti sig einnig í samband við foreldra annarra barna úr myndbandinu sem borin hafa verið kennsl á og hvatti þau til að fá sín börn til að biðja stúlkuna einlæglega afsökunar. Segir hann að því miður hafi undirtektir við beiðninni verið fremur dræmar.

Forsprakkinn maldar í móinn

Sem fyrr segir var fundur á heimili forsprakka hópsins í gær, sem Elsa sat að beiðni foreldra þolandans. Hún segir að viðmót forráðamanna stúlkunnar hafi verið jákvætt en stúlkan sjálf hafi verið í töluverðri afneitun og þrætt fyrir að hafa beitt ofbeldi. Var þá myndbandið spilað fyrir hana þar sem framganga hennar er augljós.

Elsa segir að henni vitanlega hafi stúlkan ekki orðið fyrir áreiti undanfarna daga en framhaldið sé óljóst. Þó virðist sem búið sé að reka fleyg inn í ofbeldishópinn með framtaki piltsins úr Breiðholti og föður hans.

„En ég minni á að þetta er lögreglumál, það er í rannsókn lögreglu og á borði barnaverndar,“ segir Elsa.

Hún er ósátt við að lögregla hafi ekki skipað stúlkunni réttargæslumann og vekur athygli á því að hún þurfi á þjónustu lögmanns að halda.

Populære artikler