søndag, april 5, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Ragnar Þór boðar breytingar: „Einhver verstu lánakjör sem í boði eru á Vesturlöndum”

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að Íslendingar eigi ekki að sætta sig við óbreytt ástand þegar kemur að húsnæðismálum.

„Íslendingar búa við einhver verstu lánakjör sem í boði eru á Vesturlöndum. Húsnæðislánakerfi okkar líkist meira því sem þekkist í ríkjum eins og Tyrklandi, Argentínu og Rússlandi en kerfi nágrannaríkja okkar. Þessu er hægt að breyta,” segir hann í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

„Við eigum ekki að sætta okkur við óbreytt ástand. Að viðskiptabankarnir lækki vexti sína hægar og minna en lækkun stýrivaxta. Fákeppni hefur einkennt efnahagsmál, verslun og viðskipti á Íslandi allt frá tímum einokunar Danakonungs og jafnvel lengur. Það er aðkallandi að rjúfa einokun og fákeppni á sem flestum sviðum og tryggja virka samkeppni og neytendavernd.“

Mun hagstæðari kjör annars staðar

Ragnar segir í grein sinni að áratuga verðtrygging húsnæðislána hafi rýrt eignamyndun heimilanna, blekkt neytendur og gert þeim erfiðara að átta sig á raunverulegum kostnaði lána. Verðtryggingin geri auk þess stýrivaxtatæki Seðlabankans bitlaust.

„Víðast hvar annars staðar eru húsnæðislán gjarnan fjármögnuð með öðrum hætti en hér þekkist. Heimilum bjóðast mun hagstæðari kjör í nágrannaríkjum. Í Danmörku eru húsnæðislán til dæmis gjarnan fjármögnuð með útgáfu sértryggðra skuldabréfa. Þetta fyrirkomulag hefur skilað Dönum frábærum kjörum á húsnæðislánum,“ segir hann.

Ragnar bendir á að nýverið hafi borist þær fréttir að húsnæðisvextir í Danmörku væru að lækka vegna áhrifa ófriðarins í Mið-Austurlöndum á skuldabréfamarkaðinn. Á sama tíma sé ófriðurinn að öllum líkindum að valda hækkun á vöxtum húsnæðislána Íslendinga.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Bindur vonir við tillögur starfshóps

Ragnar Þór skipaði fyrir skemmstu starfshóp til að móta tillögur um nýtt húsnæðislánakerfi. Hópurinn er skipaður fulltrúum aðila vinnumarkaðsins, bæði vinnuveitenda og verkalýðshreyfingar, fulltrúum úr stjórnsýslunni og fulltrúum neytenda. Verkefni hópsins er tvíþætt, að sögn Ragnars.

„Í fyrsta lagi að kortleggja þær breytingar sem orðið hafa á lánaframboði eftir svokallaða vaxtadóma og áhrif þeirra breytinga á neytendur. Starfshópurinn greini hvort gera þurfi breytingar á lögum um fasteignalán til heimilanna þannig að staða lántaka verði ekki lakari en hún var áður en vaxtadómarnir voru kveðnir upp og eftir atvikum leggja fram tillögur um breytingar.

Í öðru lagi á starfshópurinn að greina hvort, og þá hvernig, taka megi upp nýtt húsnæðislánakerfi hér á landi með hliðsjón af erlendum fyrirmyndum, með það að markmiði að innleiða kerfi sem tryggi meira gagnsæi, sveigjanleika og fyrirsjáanleika fyrir heimilin en nú er.“

Ragnar segir starfshópnum sé þannig falið að skoða fyrirkomulag húsnæðislánakerfa annarra landa, einkum nágrannaríkja, og meta kosti þess og galla í samanburði við okkar kerfi.

„Ég bind miklar vonir við að starfshópurinn skili af sér metnaðarfullum tillögum, þannig að bráðlega verði lagður grunnur að nýju húsnæðislánakerfi öllum almenningi til hagsbóta.“

Populære artikler