tirsdag, marts 10, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Reyndi að taka á móti stórri kókaínsendingu á heimili sínu

Fertugur maður hefur verið ákærður fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnabrots.

Manninum er gefið að sök að hafa, fimmtudaginn 20. júní 2025, á heimili sínu að Auðbrekku 10 í Kópavogi, gert tilraun til að taka á móti 2.264 kg af kókaíni með styrkleika 65%-73%. Fíkniefnin voru falin í póstsendingu sem barst hingað til lands 19. júní 2025, frá Svíþjóð, og var ákærði skráður móttakandi sendingarinnar. En lögreglan fann efnin og fjarlægði þau áður en ákærði tók á móti sendingunni.

Fyrir utan að krefjast refsingar yfir manninum er krafist upptöku á fíkniefnunum, einum iPhone farsíma og einum Samsung-farsíma.

Málið verður þingfest við Héraðsdóm Reykjavíkur þann 18. mars næstkomandi.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler