Margir hafa hlaupið 1. apríl í dag vegna aprílgabbs Morgunblaðsins um að í dag séu seinustu forvör að sækja um niðurfellingu kílómetragjalds. Lesendum miðilsins er bent á að mæta á skrifstofu Skattsins og fylla þar út eyðublaðið RSK 01.04.26 fyrir klukkan 15:30 í dag.
Gabbið hefur vakið gífurlega athygli og er nú mest lesna fréttin á mbl.is. Ljóst er að ekki hafa allir áttað sig á því að hér sé um gabb að ræða og Skatturinn hefur nú sent út tilkynningar á vefsíðu sinni sem og Facebook til að koma því skýrt á framfæri að frétt Morgunblaðsins er uppspuni frá rótum.
DV reyndi að hafa samband við Skattinn eftir ábendingu um að aprílgabbið væri að valda usla í afgreiðslu stofnunarinnar. Blaðamaður fékk þar samband við símsvara sem tilkynnti að hann væri númer 40 í röðinni.
Af athugasemdakerfum Facebook má ráða að mörgum sé lítið skemmt yfir þessu uppátæki Morgunblaðsins. Einn skrifar á Facebook-síðu miðilsins:
„Þegar þú lætur fólk hlaupa 1. apríl þá er staðsetningin sem hlaupið er til með í gríninu. Þetta er virkilega aumt og lélegt grín hjá blaðamönnum Morgunblaðsins. Starfsfólk Skattsins er þá þegar á haus og fólk er þá þegar nógu reitt yfir kílómetragjaldinu til að falla fyrir þessu. Af hverju sögðu þið fólki ekki að mæta í Hádegismóana til að sækja um þessa „niðurfellingu“? Var það því þið gátuð ekki hugsað ykkur að segja fólkinu sem kæmi að þetta væri 1. aprílgabb?“
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Fleiri hafa látið reiði sína í ljós:
„Sennilega með skítlegustu aprílgöbbum sem ég hef séð, margir eru örvæntingafullir og fátækir og bara elítan myndi gera svona gabb“
„Þetta aprílgabb mbl.is er í aumari kantinum. Álagning þessa gjalds er líka algjört flopp. Því miður.“
„Þetta er svo ljótt grín, skamm, skamm“
„Mjög ljótt gabb. Sýnir hvers konar lið vinnur hjá mbl“
„Þetta er ekki fyndið“
Aprílgabbið birtist ekki bara á vefnum heldur líka í prentaðri útgáfu Morgunblaðsins í dag.

Kvikmyndagerðamaðurinn Hrafn Jónsson segir að hér sé um að ræða Moggalegasta aprílgabb allra tíma.

