mandag, april 27, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

24 ára Íslendingur látinn eftir fallhlífarslys í Danmörku

24 ára gamall Íslendingur lést í fallhlífaslysi við Beldringe nærri Óðinsvéum í Danmörku fyrr í dag. Frá þessu greinir danska lögreglan í tilkynningu.

Í frétt Extra Bladet kemur fram að tilkynning um slysið hafi borist lögreglunni á Fjóni klukkan 11:30, en í kjölfarið voru sjúkraflutningar og lögregla send á vettvang. Þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn reyndist maðurinn alvarlega slasaður og lést hann skömmu síðar.

Samkvæmt fyrstu upplýsingum opnaðist fallhlíf mannsins ekki með eðlilegum hætti. Maðurinn var hluti af hópi sem stundaði fallhlífastökk á svæðinu að því er fram kemur í dönskum fjölmiðlum.

Lögregla rannsakar nú tildrög slyssins og hvað það var sem fór úrskeiðis. Aðstandendum hins látna hefur verið tilkynnt um andlátið.

Að sögn RÚV er málið á borði borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins sem veitir ekki frekari upplýsingar að svo stöddu. Hinn látni var í sínu fyrsta einstaklingsstökki en hann var á fallhlífastökksnámskeiði hjá Odense Faldskærmscenter.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler