onsdag, juni 17, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Skora á Sjúkratryggingar í máli Jóns Atla – Sækist eftir krabbameinsmeðferð í Svíþjóð

Jón Atli Magnússon, fjölskyldumaður í blóma lífsins, greindist með eitthvert banvænasta krabbamein sem fyrirfinnst, glioblastóm, en um er að ræða illkynja heilaæxli sem myndast úr stoðfrumum heilans.

Hér á landi er aðeins í boði grunnmeðferð gegn þessum sjúkdómi en víða erlendis er í boði framhaldsmeðferð þar sem beitt er lækningatækinu Optune Gio, sem hefur þá virkni að hægja á eða stöðva framleiðslu krabbameinsfruma. Meðferð með Optuine Gio er samþykkt í Svíþjóð sem viðbótarmeðferð við meininu. En Sjúkratryggingar Íslands telja meðferðina ekki vera brýna nauðsyn og hafa því synjað Jóni Atla um greiðsluþátttöku í meðferðinni.

Sjá einnig: Jón Atli er með banvænt heilaæxli – Sjúkratryggingar Íslands neita honum um meðferð sem getur lengt líf hans

Stofnaður hefur verið undirskriftalisti á Island.is þar sem skorað er á SÍ að breyta um afstöðu í málinu. Í texta áskoruninnar segir:

Click here to preview your posts with PRO themes ››

„Við undirrituð skorum á Sjúkratryggingar, heilbrigðisráðherra og alla þá sem völd hafa til að greiða leið Jóns Atla Magnússona í krabbameinsmeðferðina Optune Gio (sem og öðrum sem uppfylla skilyrði þess) í samstarfi við Svíþjóð. Gerum við kröfu um tafarlausa afgreiðslu málsins.“

Er þessi frétt var skrifuð höfðu tæplega 4.000 manns skrifað undir áskorunina.

Sjá nánar hér.

Populære artikler