mandag, juni 15, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Ólafur Helgi með ákall til landsmanna: „Ísland þarf byltingu, ef svo má að orði komast. Það er að renna upp sá tími að hennar sé þörf“

„Auka þarf skilning á mikilvægi þess að heilbrigðir einstaklingar, konur og karlar, leggist á árarnar og gefi af sér lífgjöf,” segir Ólafur Helgi Kjartansson í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.

Ólafur er í stjórn Blóðgjafafélags Íslands og segir hann að brýn þörf sé á að fjölga blóðgjöfum hér á landi. Bendir hann á að lauslega vanti um 2.500 nýja blóðgjafa til að tryggja að ávallt séu fyrir hendi nægar birgðir blóðs.

Eitt slys getur kallað á nokkur hundruð blóðgjafa

Ólafur Helgi segir að blóðgjafar gegni mikilvægu hlutverki og blóðgjafir byrji oft við komu barna í heiminn til að tryggja líf þeirra og heilbrigði.

„Nýburar eru í mörgum tilvikum háðir því að á hinum endanum séu veitendur þegar blóðið rennur í pokann sem síðan er nýttur til gjafar þeim sem þurfa“ segir hann en það eru margir fleiri sem þarfnast blóðgjafar, til dæmis þau sem berjast við krabbamein. Þá megi ekki gleyma slysum og dæmi séu um að þurft hafi meira en hundrað blóðgjafa til að bjarga slösuðum manni eftir bílslys.

„Dæmi er einnig um að þurft hafi gríðarlega mikið blóð eftir stunguárás. Í þeim tilvikum sem hér er vísað til sendi Blóðbankinn út neyðarkall og brugðust margir vel og snöggt við, sem betur fer. Að sjálfsögðu er best að blóðbirgðir séu ávallt nægar og neyðarhróp þurfi ekki að koma til“ segir hann.

Segir Ísland þurfa byltingu

Í grein sinni segir Ólafur að nú sé staðan þannig að það vantar nýja blóðgjafa og því sé ætlunin að vekja heilbrigða til vitundar um að það að gerast blóðgjafi er nánast alltaf létt verk.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

„Þess varð vart í þrengingum atvinnulífs á árunum eftir hrun að erfiðar gekk að fá leyfi til þess að skreppa úr vinnu til að gefa blóð. Það koma því margir að málefninu, bæði launþegar og vinnuveitendur, og er höfðað til samvisku allra sem hlut eiga að máli. Ísland þarf byltingu, ef svo má að orði komast. Það er að renna upp sá tími að hennar sé þörf,“ segir Ólafur og heldur áfram:

„Í þessum efnum treystum við á gjafmildi fólks sem vill láta gott af sér leiða fyrir samfélagið. Ef til vill má segja að um sé að ræða samfélagsskyldu. Og sem fyrr segir er hún létt og auðveld heilbrigðu fólki. Blóðbankinn safnar blóði í Turninum í Kringlunni, nánar tiltekið á 5. hæð í Norðurturninum. Á léttu nótunum má benda á að samþætta má verslunarferð og blóðgjöf. Engin vandræði eru að fá bílastæði.“

Létt að bjarga lífi með því að gerast blóðgjafi

Ólafur ítrekar að það þurfi hreinlega byltingu til að ná markmiðum um fjölgun blóðgjafa. Tekinn hafi verið í notkun nýr og léttari blóðgjafabíll sem staðsettur er á Akureyri og gefur færi á því að fara í blóðsöfnunarferðir nyrðra. Auk þess fari gamli bíllinn í söfnunarferðir hér syðra.

„Við þurfum góðvild og gjafmildi til þess að hrinda af stað blóðbyltingu, sem reyndar er eina byltingin sem höfundur hefur hvatt til, en þörfin er brýn. Hugsum okkur nýfætt barn sem vantar blóðgjöf, slasað fólk sem sárlega þarfnast blóðs til að halda lífi, krabbameinssjúka sem verða að fá blóð til að lifa og þá sem vegna aðgerða þurfa blóð,“ segir Ólafur sem endar skrif sín á þessum orðum:

„Með þetta í huga skulum við gerast byltingarmenn og hvetja alla sem það geta til að slást í hóp blóðgjafa og létta óþekktum þiggjendum lífið. Það er létt að bjarga lífi með því að gerast blóðgjafi. Gerum það.“

Populære artikler