fredag, maj 8, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Ákærður fyrir hótanir gegn unnustu – „Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um“

Maður á Akureyri hefur verið ákærður fyrir hótanir gegn fyrrverandi unnustu sinni, með því að hafa fimmtudagskvöldið 19. september árið 2024 sent henni eftirfarandi skilaboð:

„Ef ég verð hér við vini þína hér þá get jarðað þig hér og nú ef þú vilt Þú færð ekki fleiri tækifæri til að gera mér lífið leitt Ég ræðst beint á það sem þér þykir vænst um ef þú vilt fara þangað”

Segir í ákæru Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra að skilaboðin hafi verið til þess fallin að vekja hjá konunni ótta um líf sitt, heilsu og velferð sína.

Maðurinn er einnig ákærður fyrir að hafa í tvö skipti haft ólögleg fíkniefni í vörslu sinni, þar á meðal 13 grömm af amfetamíni.

Aðalmeðferð í málinu verður við Héraðsdóm Norðurlands eystra þann 13. maí næstkomandi. Þinghald í málinu er lokað.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler