Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs í hádeginu. Brugðist var hratt við og var lögreglan með mikinn viðbúnað í ljósi tilkynningarinnar.
Frá þessu segir í stuttri tilkynningu frá lögreglunni.
Þar kemur einnig fram að rannsókn málsins er á frumstigi og ekki hægt að veita frekari upplýsingar í bili.
Liggur því engan veginn fyrir um hvað málið snýst nema að það er alvarlegt og væntanlegt saknæmt.
Sjá nánar um málið: Blóð á húsinu – „Þetta er mjög óþægilegt“
RÚV greinir frá því að fjölmennt lið lögreglu hafi staðið í aðgerðum í Kársnesi í Kópavogi upp úr hádegi í dag. Hafi bæði almennir lögreglumenn og liðsmenn sérsveitar ríkislögreglustjóra verið að störfum. Hafi lögregla sent minnst fjóra bíla á vettvang auk þess sem sérsveitin mætti með sex menn á þremur bílum.
Ekki hafa fengist upplýsingar um hvað átti sér stað og lögregla verst enn allra frétta af atvikum málsins.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Uppfært kl. 15:05
Vettvangurinn er við Hafnarbraut í Kópavogi. Að sögn vitna mátti heyra byssuskot og öskur. Tækndeild lögreglu hefur verið að störfum á vettvangi frá því í hádeginu og afgirt stórt svæði í kringum vettvanginn.
Meðfylgjandi eru aðsendar myndir.
Uppfært kl. 15:25
DV náði sambandi við konu sem býr í næsta stigagangi við atvikið. Öskur kváðu við í hádeginu sem heyrðust inn í íbúðina. Konan sjálf var þá sofandi með ungri dóttur sinni en eiginmaður hennar heyrði öskrin. Þau hafa ekki orðið vör við lögregluaðgerðina umfram það sem þau sjá út um glugga.
Sést þar að svæði í kringum vettvanginn er hann afgirt. Löreglubílar eru enn á vettvangi en hefur fækkað niður í fjóra úr sex þegar mest var. Sérsveitarbílar eru farnir af vettvangi.



