mandag, juni 1, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Fangi tók eigið líf á Hólmsheiði í morgun

Fangi á Hólmsheiði fannst látinn í klefa sínum í morgun og hafði tekið eigið líf.

Þetta staðfesti Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu, félags fanga, er DV hafði samband við hann eftir að hafa fengið ábendingu um málið.

Guðmundur Ingi segir að starfsfólk og fangar fái áfallahjálp sálfræðinga vegna atviksins. Hann segist að öðru leyti ekki geta tjáð sig um málið í bili þar sem svo skammt er liðið síðan atvikið átti sér stað.

DV sendi fyrirspurn um málið til Rögnu Bjarnadóttur, nýskipaðs fangelsismálastjóra. Hún staðfesti andlát fanga en gat ekki veitt frekari upplýsingar í bili.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler