søndag, maj 3, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Foreldrar barns í Vesturbæjarskóla hafa tekið það úr skólanum vegna hinseginfræðslu

Faðir barns í 4. bekk í Vesturbæjarskóla greinir frá því að hann og móðir barnsins hafi árangurslaust reynt að sækja um undanþágu fyrir barnið frá kennslustundum þar sem notast er við fræðsluefni frá Samtökunum 78.

Nútíminn greinir frá.

Eftir árangurslausan fund um málið sendu þau formlegt erindi um þetta til Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.

„Við förum aðeins fram á að tekið sé tillit til sannfæringar okkar og lífsskoðana og að barnið okkar sé ekki látið sitja undir fræðslu er stríðir gegn velferð fjölskyldunnar,“ segir faðirinn í samtali við Nútímann.

Hann greinir frá því að á fundi með skólastjórnendum hafi verið vikið að mögulegri aðkomu barnaverndaryfirvalda. Faðirinn segir við Nútímann:

„Við vorum spurð hvort barnaverndarnefnd ætti ekki að skoða málið. Ég sagði þeim að það væri velkomið að senda á okkur barnaverndarnefnd. Við hjónin eigum tvö börn og lifum eðlilegu fjölskyldulífi. En það væri ekki víst að skólinn kæmi vel út í fjölmiðlaumræðu ef barnaverndarnefnd væri sigað á okkur fyrir að biðjast undan hinseginfræðslu.“

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Í erindi foreldranna til Skóla- og frístundasviðs fara þau fram á að barnið verði undanskilið fræðslu „í tilteknum kennsluþáttum sem falla undir jafnréttis- og lífsleiknikennslu“.

Sjá nánar hér.

Populære artikler