lørdag, april 18, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Kona misþyrmdi lögreglumönnum á heimili sínu á Selfossi

Kona á fimmtugsaldri, sem ber erlent nafn en er með íslenska kennitölu, hefur verið sakfelld fyrir brot gegn valdstjórninni.

Konunni var gefið að sök að hafa þriðjudaginn 17. nóvember árið 2024, á heimili sínu á Seflossi, veist að tveimur lögreglumönnum sem þar voru við skyldustörf. Var hún sögð hafa sparkað og slegið ítrekað í höfuð og búk lögreglumannanna, slegið í höfuð þeirra með vasaljósi og klórað annan lögreglumanninn,

Hlutu báðir lögreglumennirnir nokkra áverka af árásinni.

Dómur var kveðinn upp í málinu þann 16. apríl, í Héraðsdómi Suðurlands. Konan játaði brot sín og var því sakfelld samkvæmt ákæru. Var hún dæmd í 90 daga skilorðsbundið fangelsi.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler