onsdag, maj 20, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Maður sagður hafa elt nemendur í Lækjarskóla og ógnað þeim með hnífi

DV fékk ábendingu um að maður hefði ógnað nemendum í Lækjarskóla með hníf. Hann hafi hlaupið á eftir stúlkum með hníf í hendi. Maðurinn gengur laus og lögregla leitar hans.

Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Lögreglustöð 2, segir upplýsingar um málið enn mjög óljósar.

„Það vantar mikið af upplýsingum inn í málið svo ég geti tjáð mig almennilega,“ segir Skúli en lögreglu barst tilkynning um atvikið kl. 13:43:

„Það kemur stúlka inn í skólann í geðshræringu og segir að maður hafi verið að elta hana með hníf, það var orðað þannig, og lögregla fór bara á staðinn. Við erum búin að vera að leita að þessu út um allt og höfum ekki haft upp á honum,“ segir Skúli og ítrekar að mikið af upplýsingum vanti til að hægt sé að draga upp skýra mynd af atvikinu.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Atvikið átti sér ekki stað á skólalóð Lækjarskóla heldur skammt frá. Samkvæmt óstaðfestum heimildum DV voru börnin að koma úr leikfimi en þau eru á aldrinum 10-11 ára.

Engan virðist hafa sakað við þetta athæfi mannsins.

Skúli segir að mögulega verði gefin út tilkynning um málið síðar í dag.

Uppfært: Lögregla hefur sent frá sér tilkynningu um málið, sjá nánar hér

Populære artikler