torsdag, april 16, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Rannsókn hópnauðgunarmálsins á Akureyri lokið

Lögreglan á Norðulandi eystra hefur lokið rannsókn á kynferðisbrotamáli sem vakti landsathygli í marsmánuði. RÚV greinir frá.

Þrír menn voru handteknir við rannsókn málsins en ekki var krafist gæsluvarðhaldsúrskurðar. Voru þeir grunaðir um kynferðisbrot gegn konu á þrítugsaldri á hóteli í miðbæ Akureyrar. Þeim var sleppt að loknum yfirheyrslum.

Skarphéðinn Aðalsteinsson, yfirmaður rannsóknardeildar Lögreglunnar á Norðurlandi eystra, segir í samtali við RÚV að fleiri en einn séu með stöðu sakbornings í málinu en vildi ekki gefa upp hvað þeir væru margir. Rætt hafi verið við þó nokkra við rannsóknina.

Segir Skarphéðinn að ákvörðun verði tekin fljótlega um hvort ákært verði í málinu eða ekki.

Ekki náðist samband við Skarphéðinn við vinnslu þessarar fréttar.

Einn hinn handteknu var áhrifavaldurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson, öðru nafni Kleini. Hann lýsti yfir sakleysi með stuttri færslu á samfélagsmiðlum: „Ég er saklaus af þeim ásökunum sem komið hafa fram. Ég mun ekki tjá mig frekar um málið á meðan það er til rannsóknar hjá lögreglu.“

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Sjá einnig: Þrír menn grunaðir um nauðgun á Akureyri í nótt

Populære artikler