tirsdag, juni 2, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Stór og kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu fannst víða

Snarpur jarðskjálfti reið yfir á suðvesturhorninu klukkan 13:45 í dag og fannst hann vel víða, þar á meðal á Akranesi og Þorlákshöfn.

Samkvæmt fyrstu niðurstöðum virðist stærð hans hafa verið 4,5 og eru upptök hans vestan við Hengilinn, eða á þeim slóðum þar sem skjálftahrina hefur verið í gangi síðan í gærmorgun.

Veðurstofan sendi tilkynningu frá sér klukkan 14:01 og í henni kemur fram að upptökin hafi verið vestan við Húsmúla á Hellisheiði.

„Veðurstofan hefur fengið fjölda tilkynninga um að skjálftinn hafi fundist greinilega víða á Suðvesturlandi m.a. í Hveragerði, Selfossi og Höfuðborgarsvæðinu. Jarðskjálftahrina hófst á svæðinu í gærmorgun og er þetta stærsti skjálftinn í þessari hrinu hingað til. Veðurstofan minnir á fólk að huga að viðbrögðum vegna jarðskjálfta, sjá nánar á heimasíðu Almannavarna: Viðbrögð við jarðskjálfta.“

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler