torsdag, maj 21, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Unglingur veittist að börnum við ærslabelg í Kópavogi – „Dóttir mín og fleiri börn urðu fyrir áfalli“

Alvarlegt atvik varð við ærslabelg við Dalsmára í gærkvöld þar sem börn voru að leik. Móðir greinir frá því að 17 ára unglingur hafi veist að barninu hennar og fleiri börnum og vakið skelfingu barna á staðnum.

„Dóttir mín og fleiri börn urðu fyrir áfalli þegar 17 unglingsdrengur veittist að barninu mínu,“ skrifar móðir í hverfishóp á Facebook.

DV náði sambandi við Sigrúnu Kristínu Jónasdóttur, lögreglufulltrúa á Lögreglustöð 2, sem sinnir verkefnum í Kópavogi. Staðfesti hún atvikið en segir að um andleg veikindi sé að ræða.

„Við fórum þarna. Þetta eru eiginlega meira veikindi. Þetta var unnið í samvinnu við barnavernd sem tekur við boltanum,“ sagði hún í samtali við DV.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler