torsdag, april 30, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Áhlaup gerð á nafngreiningasíðu og birtar tilhæfulausar ásakanir um fólk – Íslenskir stjórnmálamenn á meðal nafngreindra

Erlend vefsíða, namehim.app, gefur notendum kost á að birta nafnlausar ásakanir á nafngreinda einstaklinga um ofbeldi. Engin ritstjórn er á síðunni og síðuhaldarar vísa frá sér allri ábyrgð á upplýsingum sem þar birtast.

Nýlega hafa íslenskir notendur uppgötvað síðuna og sett inn efni á hana. Meðal Íslendinga sem nú eru skráðir á síðuna má finna bæði þekkt og óþekkt nöfn. Upplýsingarnar virðast vera meira og minna út í hött. Meðal annars er að finna fráleitar staðhæfingar um stjórnmálamennina Pétur H. Marteinsson og Dag B. Eggertsson. Það sýnir fáránleika efnisins á síðunni að meðal þeirra sem eru nafngreindir er karakterinn Keli sem þekktur er úr auglýsingum Mjólkursamsölunnar um kókómjólk. Baráttukonan Sema Erla Serdaroglu er einnig á meðal þeirra sem eru nafngreindir á síðunni og sakaðir um ofbeldi.

Undanfarið hefur verið dælt inn á síðuna fjölmörgum tilhæfulausun ásökunum um einstaklinga, að því er virðist af ásettu ráði og með einbeittum brotavilja. Meðal þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á misnotkun á síðunni er Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, umsjónarmaður Facebook-hópsins „Áfram stelpur!“ þar sem vefsíðan hefur verið til umræðu. Inni á namehim.app er Aðalheiður sökuð um tilfinningalegt og líkamlegt ofbeldi, og áreitni, þar á meðal kynferðislega áreitni.

„Það getur hver sem er sagt hvað sem er um hvern sem er þarna inni. Það er enginn sem kemur nálægt því að samþykkja innlegg. Þetta er mjög hættulegur vettvangur. Það sem er í gangi þarna núna er í raun skriða af hefndarpóstum þar sem fólk er að ná sér niður á þeim sem þeim er í nöp við. Þetta hefði getað verið frábær vettvangur ef vandað hefði verið til verka en því miður er það ekki staðan og það er verið að nota veikleika síðunnar gegn aktívistum, feministum og almenningi með birtingum á hefndarpóstum, eins og sést,“ segir Aðalheiður í samtali við DV.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Hún telur mikilvægt að til sé vettvangur sem geri þolendum kleift að deila reynslu sinni af ofbeldi. Borið hefur á slíkum birtingum í áðurnefndum Facebook-hópi hennar, „Áfram stelpur!“ og hefur hópurinn verið umdeildur af þeim sökum. Aðalheiður segir hins vegar að nafnbirtingar á ofbeldismönnum sé minnsti hlutinn af efninu í hópnum en þar geti þolendur deilt reynslu sinni og fengið ráðgjöf og stuðning hver hjá öðrum.

Hún segist ekki vita hver sé að verki í tilhæfulausri nafnbirtingu hennar á namehim.app og hún ætli ekki að reyna að setja sig inn í hugarfar þess einstaklings sem þarna er að verki. Hún telur hins vegar fulla ástæðu til að vara fólk við vefsíðunni og telur hana engan veginn vera heppilegan vettvang fyrir þolendur ofbeldis.

Hún ráðleggur öllum að leiða síðuna hjá sér og birta ekki efni á henni.

Populære artikler