lørdag, april 25, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Dagur segir enga hættu felast í því að láta reyna á samninga við ESB

Ummæli Costas Kadis, sjávarútvegsstjóra ESB, um að Íslendingar geti fengið undanþágur frá sjávarútvegsstefnu sambandsins við inngöngu í það, verða Degi B. Eggertssyni, þingmanni Samfylkingarinnar, tilefni skrifa á Vísir.is. Ummæli sjávarútvegsstjórans eru á skjön við þann málflutning margra andstæðinga ESB-aðildar að ekki sé um neitt að semja í sjávarútvegsmálum.

Dagur segir mikilvægt að láta reyna á samninga og því fylgi engin hætta. Aðildarviðræður séu eina leiðin til að fá úr því skorið hvaða samningar náist:

„Kjarni málsins er að það eru þjóðarhagsmunir að láta á samninga um aðild að Evrópusambandinu reyna, með því að segja já, þjóðaratkvæðagreiðslunni í haust. Þannig fáum við úr því skorið hvaða samningum við náum, og þurfum ekki að geta okkur til um það. Í húfi eru lægri vextir fyrir heimili og fyrirtæki, betri samkeppnishæfni atvinnulífs, enn sterkari staða í öryggis- og varnarmálum, vörn innan tollabandalags í alþjóðlegu umhverfi tollastríða og þannig mætti áfram telja.

Það felst engin hætta í því að láta á samninga reyna. Önnur þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin um endanlega samninga. Þar munu því liggja fyrir samningsniðurstöður um gjaldmiðlamálin, sjávarútveg, varnar- og öryggismál, tollabandalagið og allt annað.“

Sjá nánar hér.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler