fredag, april 24, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Handtekinn við heimkomu á Keflavíkurflugvelli: Vara sem fjölmargir ferðast með talin grunsamleg

Damian Andrzejewski, sem flutti hingað til lands fyrir ári síðan, var handtekinn á Keflavíkurflugvelli eftir sólarhringsferð til Póllands. Ástæðan var að hans sögn líklega útlit hans, auk þess sem tollvörðum fannst ferðakoddi sem hann keypti á vellinum og var með um hálsinn grunsamlegur og töldu þeir Damian vera að flytja fíkniefni til landsins.

Í samtali við DV segir Damian kíminn að það að vera handtekinn á flugvellinum sé ein leið til að fá athygli. Hann var beðinn afsökunar og látinn laus eftir þrjár klukkustundir og segist ekki ætla lengra með málið.

Damian flutti fyrst til Íslands fyrir um 12 árum. „Fyrir um fimm árum fór ég aftur til Póllands, reyndi að byggja upp eitthvað þar og mistókst. Oftar en einu sinni. Ég átti nokkra veitingastaði, fór á hausinn, tapaði eiginlega öllu,“ segir Damian hreinskilinn aðspurður um af hverju hann hefur valið að búa á Íslandi.

Þurfti til Póllands að ganga frá málum vegna gjaldþrota fyrirtækis

Ástæða ferðarinnar til Póllands var sú að hann þurfti að fara og ganga frá málum vegna gjaldþrotamáls hans þar.

„Ég þurfti að takast á við mikilvægt mál sem tengdist gjaldþroti fyrirtækisins míns í Póllandi, svo ég flaug út, tókst á við það og kom beint til baka. Ég var stressaður í marga daga vegna málsins áður en ég flaug út.“

Damian flaug til Póllands á sunnudagskvöldi og eftir nær 30 klukkutíma ferðalag, þrjár flugvélar og millilendingu í öðru landi, lenti hann aftur heima á Keflavíkurflugvelli. Þar var hann stöðvaður af tollgæslunni.

Aðspurður um af hverju hann var stöðvaður á vellinum við komuna hingað til lands segir Damian að hann haldi að hann hafi bara litið út eins og „fullkominn sökudólgur“ (e. Perfect Suspect.)

„Hávaxinn, húðflúraður, úrvinda, pólskur. Flýg út og tilbaka innan sólarhrings, enginn farangur, bara lítil taska. Ef þú skrifaðir þetta atvik sem kvikmyndahandrit, þá myndirðu nú þegar vita hvernig það endar.“

Það var þó ekki bara útlit hans sem vakti athygli við komuna til landsins og varð til þess að hann var handtekinn.

„Það kom í ljós að ferðakoddinn sem ég átti gaf sömu niðurstöðu og það sem þeir voru að athuga. Svo var ég settur í líkamsleit og sagt að ég væri handtekinn, grunaður um að hafa flutt fíkniefni til Íslands. Jafnvel þótt engin fíkniefni fyndust. Bara þessi niðurstaða úr prófi á kodda.“

Handtekinn við heimkomu á Keflavíkurflugvelli: Vara sem fjölmargir ferðast með talin grunsamleg

Damian og ferðakoddinn sem vakti grunsemdir tollgæslunnar

Damian var enn með kvittun fyrir kaupunum á ferðakoddanum, sem betur fer segir hann.

„Eftir að hafa talað við mig, komu þeir með annan kodda frá flugvellinum til að prófa hann og hann sýndi nákvæmlega sömu niðurstöðu. Þá báðust þeir afsökunar. Ég ætla ekki að fara lengra með þetta. Ég vildi bara fara heim og fara aftur í bakaríið mitt.“

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Damian gekk því út af Keflavíkurflugvelli að verða tvö um nóttina gjörsamlega búinn á því.

View this post on Instagram

A post shared by Damian | The Nomad Baker (@the_nomad_baker_)

Damian segir að sannleikurinn sé sá að þetta hefði getað farið allt öðruvísi. Ef að atvikið hefði átt sér stað í öðru landi væri hann mögulega ekki til staðar til að segja sögu sína.

„Ef þetta hefði gerst í öðru landi held ég að ég væri ekki hérna að segja sögu mína. Ég sæti líklega í herbergi í marga klukkutíma, eða verra, og að reyna að sanna eitthvað sem ég gerði ekki einu sinni. Og það er sá hluti sem mér finnst ekki alveg í lagi. Vegna þess að ekkert við þetta var eitthvað sem ég bar ábyrgð á. Ein handahófskennd vara. Ein prófun. Eitt skipti. Og skyndilega ertu grunaður um glæp. Þetta ætti ekki að vera hægt,“ segir Damian.

„Ég vona bara að eitthvað hafi verið gert í þessum kodda, svo þetta gerist ekki einhvern tíma aftur, annars staðar, þar sem slíkt atvik sem þetta endar ekki með afsökunarbeiðni.“

Finnst Ísland vera heima og vonast til að ná íslenskunni einn daginn

Damian segir aðspurður að honum líki vel að búa á Íslandi og finnst landið meira heimili hans en aðrir staðir sem hann hefur búið á. Ekki vegna þess að það sé auðvelt að búa hér, þvert á móti.

Heldur vegna þess að hér getur hann loksins gert hlutina með sínum eigin hætti og fólk virðir það.

„Fyrir ári síðan kom ég aftur til Íslands og byrjaði frá grunni. Núna rek ég lítið bakarí á landsbyggðinni, á Flúðum. Á hverjum morgni baka ég brauð og sætar bollur fyrir heimamenn og fólk sem dvelur í sumarhúsum í nágrenninu. Ég geri líka mínar eigin vörur úr hráefnum úr héraði eins og pestó, súrum gúrkum og jarðarberjasultu. Þetta er einföld vinna, en hún er alvöru vinna. Og fólkið hérna kann virkilega að meta gæði, sem var ekki alltaf mín reynsla þegar ég starfaði í Póllandi.“

„Ég elska náttúruna, fólkið, kyrrðina, jafnvel ringulreiðina stundum. Það sem fer alveg með mig enn þá er tungumálið. Ég skil mikið, en að tala íslensku er erfitt. Einn daginn mun ég ná henni,“ segir Damian brosandi.

Populære artikler