tirsdag, april 21, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Efling hvetur til upptöku leigubremsu – Húsaleiga hækkað mun meira en víðast hvar í Evrópu

Stjórn Eflingar stéttarfélags hefur sent Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra, Ragnari Þór Ingólfssyni félags- og húsnæðismálaráðherra og nefndarmönnum í velferðarnefnd Alþingis tillögur sínar um upptöku leigubremsu.

Segir í tilkynningu frá Eflingu að með upptöku leigubremsu á íslenskum leigumarkaði megi draga hratt úr verðbólgu, verðbólguvæntingum og vaxtastigi. Leiguverð á íslenskum leigumarkaði hafi hækkað mun meira en í grannríkjum, sem hafi gert leigu að sérstökum drifkrafti verðbólgu á Íslandi.

Efling leggur til bann við mánaðarlegum hækkunum á leigu og að árlegar hækkanir verði ekki meiri en sem nemur hækkun vísitölu neysluverðs án húsnæðisliðar. Jafnframt er lagt til að takmarkanir verði settar við ákvörðun leigu við upphaf eða endurnýjun leigusamnings þannig að leiga sé ekki hærri en fyrir sambærilegt húsnæði á markaði á þeim tíma.

Tillögurnar í heild má sjá með því að smella á tengilinn hér að neðan:

Click here to preview your posts with PRO themes ››

leigubremsa

Populære artikler