Íbúi í Hveragerði hefur verið ákærður fyrir stórfellt fíkninefnabrot og peningaþvætti. Málið kom upp snemma í ágústmánuði árið 2024. Þá fann lögregla mikið magn fíkniefna í bíl mannsins og á heimili hans, meðal annars 2 kg af amfetamíni og 332 stykki af MDMA töflum.
Maðurinn er Íslendingur á fimmtugsaldri. Hann er sakaður um að hafa um nokkurt skeið, fram til 6. ágúst árið 2024, aflað sér ávinnings af sölu og dreifingu fíkniefna, og eftir atvikum af öðrum refsiverðum brotum, að lágmarki rúmlega 32 milljónir króna.
936 þúsund krónur af þessum fjármunum fundust á bankareikningi mannsins og rúm milljón í bílnum hans.
Í peningaskápi á heimili mannsins voru geymdar 28,8 milljónir króna og þar var einnig töluvert fé í allskonar öðrum gjaldeyri, meðal annars 6.105 evrur og 7.225 tælenskt baht.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Í ákæru héraðssaksóknara er krafist upptöku á öllum peningum og fíkniefnum sem gerð hafa verið upptæk hjá manninum.
Málið verður þingfest við Héraðsdóm Suðurlands á Selfossi þann 11. júní næstkomandi.

