onsdag, juni 3, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Lögreglan leitar vitna vegna innbrotsins í Reykjabúið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn á innbroti í Reykjabúið á Suður-Reykjum í Mosfellsbæ aðfaranótt mánudagsins 1. júní.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu. Brotist var inn í hænsnabúið á fjórða tímanum mánudagsnótt. Í tilkynningunni segir:

„Innbrotsþjófurinn, sem var svartklæddur, kom gangandi að Reykjabúinu frá Bjargsvegi, en ekki er ósennilegt að hann hafi verið akandi og lagt ökutæki sínu fjarri vettvangnum. Og komið þaðan fótgangandi, mögulega neðan úr Skammdal, frá Helgafellshverfinu, úr Reykjahverfinu eða frá Hafravatnsvegi. Mörg ökutæki eru búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra. Einnig er biðlað til forsvarsmanna öryggismyndavéla sem kunna að vera á umræddu svæði að athuga með myndefni vegna málsins.

Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfangið birna.g@lrh.is og gefa þar upp bæði nafn sitt og símanúmer. Í framhaldinu verður haft samband við viðkomandi. Upplýsingum má einnig koma á framfæri í síma 444 1000.“

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Populære artikler