Margrét Friðriksdóttir, sem í morgun var sakfelld í Héraðsdómi Reykjaness fyrir ærumeiðingar í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, er afar ósátt með dóminn en segir hann hafa verið fyrirsjáanlegan.
Hún segist, í samtali við DV, vera staðráðin í því að áfrýja dómnum til Landsréttar en telur að málið muni enda fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu.
Sjá einnig: Dómur fallinn yfir Margréti – Ákærð fyrir ærumeiðingar í garð Barböru héraðsdómara
Margrét var dæmd til 200 þúsund króna sektar og til greiðslu verulegs málskostnaðar, dómurinn hefur ekki verið birtur en í samtali við DV segir hún málskostnaðinn vera um þrjár milljónir króna.
„Þetta er galið að mínu mati,“ segir Margrét og telur að háttsemi Barböru dómara sem hún skrifaði um hafi verið í samræmi við orðalag sitt um hana. Ennfremur hafi þarna ekki verið um einkamál að ræða. Margrét kemur inn á þetta í Facebook-færslu sem hún birti um málið:
„Niðurstaðan er komin og hún kemur mér alls ekkert á óvart miðað við það sem á undan er gengið. Jónas Jóhannsson héraðsdómari dæmdi mig ranglega og það er greinilega bannað að segja sannleikann um alvarlegt brot á starfsskyldum og siðareglum dómara á Íslandi.
Auðvitað stendur valdaklíkan saman það er gömul saga og ný á Íslandi, en þessum óréttláta dómi verður að sjálfsögðu áfrýjað.
Sjáum hvað gervigreindin hefur að segja um málið:
„Ef tveir dómarar fremja hjúskaparbrot (halda fram hjá) innbyrðis og eiga í kynferðislegu sambandi innan veggja dómstólsins á vinnutíma, er ekki lengur litið á málið sem hreint einkamál.“ Samkvæmt íslenskum lögum og evrópskum viðmiðum væri slíkt atvik meðhöndlað sem alvarlegt brot á starfsskyldum og siðareglum, þar sem það rýrir traust almennings á dómstólnum og brýtur gegn virðingu embættisins. [1, 2]“
Ísland er dapurlegt land löðrandi af spillingu og óréttlæti, þetta mál mun enda fyrir mannréttindadómstólnum, það er engin spurning.“

