Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Lindu Heiðarsdóttur og Ragnhildi Bolladóttur í tvö embætti skrifstofustjóra í mennta- og barnamálaráðuneytinu
Linda Heiðarsdóttir er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu skóla- og íþróttamála. Hún er með B.Ed gráðu í grunnskólakennarafræðum frá Kennaraháskóla Íslands og er að ljúka MS gráðu í verkefnastjórnun frá Háskóla Íslands.
Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að Linda hafi verið aðstoðarskólastjóri í Réttarholtsskóla frá árinu 2015 og leysti af sem skólastjóri í einn vetur. Samhliða störfum í Réttarholtsskóla var Linda hópstjóri hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu á árunum 2022 til 2025 og stundakennari á menntavísindasviði Háskóla Íslands á árunum frá 2015 til 2024.
Áður starfaði Linda í Laugalækjarskóla og var þar í ýmsum hlutverkum, m.a. sem aðstoðarskólastjóri, deildarstjóri, verkefnastjóri og umsjónarkennari.
Ragnhildur Bolladóttir er skipuð í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu. Hún er með BA gráðu í uppeldis- og menntunarfræði frá Háskóla Íslands, auk diplómu í uppeldis- og menntunarfræði við sama skóla.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
Ragnhildur leggur stund á nám við opinbera stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Ragnhildur hefur starfað sem teymisstjóri í mennta- og barnamálaráðuneytinu frá árinu 2023 en hefur undanfarna mánuði leitt skrifstofu framhaldsskóla og framhaldsfræðslu frá því skrifstofan var stofnuð.
Áður starfaði hún sem fræðslustjóri hjá Sjúkraliðafélagi Íslands og sem sérfræðingur hjá Menntamálastofnun, auk þess að hafa verið framkvæmdastjóri Framvegis miðstöðvar um símenntun og verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg og Virk starfsendurhæfingarsjóði.
Ráðgefandi hæfnisnefndir skipaðar samkvæmt 19. gr. laga 115/2011 um Stjórnarráð Íslands lögðu mat á hæfni umsækjenda. Skipað er í embættin til fimm ára.


