tirsdag, maj 26, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

MAST kærir hótanir og ærumeiðingar gegn starfsmönnum til lögreglu

Matvælastofnun (MAST) hefur kært til lögreglu hótanir um ofbeldi gegn starfsmönnum stofnunarinnar vegna starfa þeirra í tengslum við vörslusviptingu dýra.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu MAST. Hinn kærði er sakaður um brot á 106. gr. almennra hegningarlaga en samkvæmt henni er refsivert að beita opinbera starfsmenn ofbeldi eða hótunum um ofbeldi við störf þeirra, eða reyna að hindra framkvæmd vörslusviptinga. Slík brot geta varðað allt að sex ára fangelsi en beita má sektum ef brot teljast smávægileg.

Einnig er maðurinn kærður fyrir að taka búnað ófrjálsri hendi, hvetja til refsiverðra verknaða og fyrir að gera starfsmönnum MAST tilboð um greiðslu fyrir tilteknar athafnir í sinni þágu. Segir að þetta sé í fyrsta skipti sem stofnunin kærir einstakling vegna slíks.

Ennfremur hefur MAST lagt fram kæru vegna aðdróttana og ærumeiðinga í garð starfsmanna sinna. Í tilkynningunni segir ennfremur:

Click here to preview your posts with PRO themes ››

„Matvælastofnun leggur ríka áherslu á að allt ofbeldi eða hótanir um ofbeldi í garð starfsmanna stofnunarinnar eru með öllu óásættanleg og verða ávallt kærð til lögreglu.“

Ekki liggur fyrir á þessari stundu hver hinn kærði einstaklingur er en lögfræðingurinn Árni Stefán Árnason hefur undanfarið átt í miklum útistöðum við stofnunina. Hefur stofnunin vörslusvipt hjá honum fimm hunda og eina dúfu á undanförnum vikum og mánuðum. Árni Stefán hefur mótmælt þeim aðgerðum harðlega á opinberum vettvangi.

Ekki náðist í Árna Stefán við vinnslu fréttarinnar.

Populære artikler