mandag, maj 25, 2026

Top 5 i denne uge

Relaterede indlæg

Skotárásin á Hafnarbraut: Maðurinn gekkst undir aðgerð í gær – Einn úrskurðaður í gæsluvarðhald

Karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í fjögurra daga gæsluvarðhald, eða til föstudagsins 29. maí, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegu atviki við Hafnarbraut á Kársnesi í vesturbæ Kópavogs um hádegisbilið í gær.

Þar leitaði karlmaður á sextugsaldri í bakarí í hverfinu illa á sig kominn, en hann var með skotsár. Maðurinn var fluttur á Landspítalann og gekkst þar undir aðgerð í gær, en hann er ekki í lífshættu að sögn lögreglu.

Sjá einnig: Atvikið í Kópavogi:Blóð á húsinu – „Þetta er mjög óþægilegt“

Lögreglan var með mikinn viðbúnað í ljósi alvarleika málsins, en böndin beindust fljótt að íbúð fjölbýlishúss steinsnar frá því þar sem slasaði maðurinn fannst. Þar innandyra var karlmaður um fertugt handtekinn í þágu rannsóknarinnar og færður á lögreglustöð.

Click here to preview your posts with PRO themes ››

Sá hefur nú verið úrskurðaður í gæsluvarðhald eins og áður sagði. Rannsókn málsins er umfangsmikil, en miðar ágætlega. Við hana hefur verið lagt hald á skotvopn, en rannsóknin beinist m.a. að því hvort það hafi verið notað í málinu.

 Við aðgerðirnar í gær naut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra.

Populære artikler