Hinn virti flugstjóri Chris Pohl, sem gengur undir nafninu Captain Chris á samfélagsmiðlum, hefur tjáð sig um kveðjuflug flugstjórans Ólafs Bragasonar yfir Vestmannaeyjar um helgina.
Ólafur, sem fagnaði 65 ára afmæli sínu í gær, flaug lágflug yfir Vestmannaeyjum á laugardag í ljósi þess að um var að ræða hans síðasta flug og vegna tengingar sinnar við Vestmannaeyjar.
Óhætt er að segja að flugið hafi vakið mikla athygli og hafa margir af stærstu fjölmiðlum heims fjallað um málið. Icelandair hefur tilkynnt málið til lögreglu.
Captain Chris nýtur mikilla vinsælda á samfélagsmiðlum og eru fylgjendur hans á Instagram til dæmis 475 þúsund talsins. Hann skrifaði pistil um málið á Instagram í gær sem hann gagnrýndi ákvörðun flugstjórans.
„Það sem átti að vera stolt kveðjuflug flugstjóra hjá Icelandair hefur í staðinn orðið áminning um hvers vegna agi verður ávallt að vera í fyrirrúmi í flugi,” segir hann og rekur viðbrögð á netinu.
Vísar hann til dæmis í umræður flugmanna á LinkedIn þar sem sumir voru afdráttarlausir og sögðu að faglærðir flugmenn beri sömu skyldur í sínu síðasta flugi og því fyrsta. Aðrir hafi varið ákvörðun Ólafs og talað um „lokaheiður“ eftir langan feril.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
„Fyrir mér er þetta í raun ekki umdeilanlegt. Flug snýst um öryggi, aga og dómgreind. Tilfinningar eiga aldrei að vega þyngra en fagmennska. Áhyggjur mínar snúa ekki aðeins að arfleifð flugstjórans, heldur líka að aðstoðarflugmanninum, en ferill hans gæti nú einnig verið í hættu einfaldlega fyrir að hafa setið í hinu sætinu þegar þetta gerðist,” segir hann meðal annars og spyr að lokum:
„Hvað finnst þér? Saklaus lokakveðja, eða alvarlegur dómgreindarbrestur sem hefði aldrei átt að eiga sér stað?“
Fjörugar umræður hafa átt sér stað undir færslu Chris og eru skoðanir skiptar. „Fólk er að gera allt of mikið mál úr þessu. Það er ekkert óöruggt við það sem hann gerði. Óvenjulegt? Já, en hættulegt? Nei,” segir til dæmis Bob Allen, annar þekktur flugáhrifavaldur.
View this post on Instagram
Hér má sjá myndband sem annar farþegi í vélinni tók:

