Séra Bjarni Þór Bjarnason segir farir sínar ekki sléttar eftir að hann lenti í klóm svikahrappa sem náðu með einhverjum hætti að misnota kreditkortið hans. Bjarni lýsir reynslu sinni í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag.
Í grein sinni segir Bjarni að hann hafi verið dyggur viðskiptavinur Íslandsbanka áratugum saman – fyrst Útvegsbanka Íslands, svo Íslandsbanka, Glitnis, Nýja Glitnis og aftur Íslandsbanka frá árinu 2009.
„Í öll þessi ár hef ég verið trúfastur viðskiptavinur bankans sem hefur borið ýmis nöfn á þessu langa tímabili,“ segir hann og bætir við að hann hafi sömuleiðis verið með Mastercard-kreditkort í yfir 40 ár.
„Það hefur alltaf gengið vel og hef ég verið ánægður með þá samleið. Ég hef alltaf staðið í skilum og tel mig hafa verið góðan viðskiptavin,“ segir hann og lýsir svo óþægilegri reynslu sem hann varð fyrir á dögunum.
Tvær dularfullar færslur
„Síðan gerðist það fyrir stuttu að Íslandsbanki hafði samband við mig að fyrra bragði til að tilkynna mér að gullkortið mitt frá Mastercard hefði verið fryst. Ástæðan væri misnotkun þar sem dularfull kaup úti heimi hefðu átt sér stað upp á kr. 170 þúsund. Sama dag kom önnur færsla fram upp á kr. 254 þúsund. Samanlagt voru þetta kr. 424 þúsund,“ segir hann.
Hann óskaði eftir að kortinu yrði lokað þegar í stað til að stöðva þjófana. Hann hitti svo þjónusturáðgjafa í útibúi bankans á Suðurlandsbraut sem skrifaði bréf til endurkröfudeildar Íslandsbanka.
Click here to preview your posts with PRO themes ››
„Daginn eftir kom bréf til mín í tölvupósti frá endurkröfudeild bankans. Bréfið er undirritað af starfsmanni deildarinnar sem er sérfræðingur í endurkröfum (Specialist Chargeback) í Viðskiptaveri,“ segir hann og bætir við að hann hafi verið orðlaus eftir að hafa lesið bréfið.
„Samkvæmt þessu bréfi segir þessi sérfræðingur bankans óbeint að ég hafi gefið leyfi fyrir þessum úttektum sem er alrangt. Glæpamennirnir eru orðnir svo færir í ósóma sínum að þeim tekst að blekkja endurkröfudeild Íslandsbanka. Niðurstaðan er eftirfarandi samkvæmt þessu bréfi: „Því miður er ekki endurkröfuréttur á færslurnar samkvæmt endurkröfureglum Master Card.“ Hér er það fórnalamb netsvika sem er látið borga brúsann. Engar tryggingar virðist bankinn hafa í svona tilfellum. Það er ótrúlegt en satt,“ segir hann.
Færði viðskipti sín annað
Bjarni kveðst vera ósáttur við þessar málalyktir og bætir við að hann hafi nú fært viðskipti sín yfir í annan banka. „Það gerði ég með trega og óbragð í munni. En ég get ekki verið í viðskiptum við banka sem kemur svona fram við mig og bregst mér algjörlega, þrátt fyrir áratuga samleið.“
Óvíst er af grein Bjarna með hvaða hætti svikahröppunum tókst að misnota kort hans. Íslandsbanki og aðrir bankar, sem og eftirlitsaðilar, hafa ítrekað varað við netsvikum og hvatt viðskiptavini til að gæta vel að kortaupplýsingum sínum.
Á heimasíðu Íslandsbanka kemur jafnframt fram að endurkröfur vegna umdeildra kortafærslna séu háðar reglum Mastercard og að bankinn fari eftir þeim við meðferð slíkra mála.


